ADHD lyfið Elvanse í styrkleika 30 og 50 milligrömm hefur verið ófáanlegt síðan í júlí. Það sama gildir um samheitalyfið. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar segir gífurlega aukningu hafa orðið í notkun lyfsins auk þess sem erfitt hafi reynst að birgðastýra því.

„En síðan hafa komið upp einhver framleiðslu-og flutningsvandamál og það er eiginlega raunverulega skýringin. Samheitalyfið var að koma á markað í þeim mánuði sem Elvanse fór í skort og þær birgðir sem þau höfðu gert ráð fyrir að nota í þrjá mánuði hurfu bara fljótt.”
Lyfið er væntanlegt aftur í byrjun september. Skorturinn er alþjóðlegur en Rúna segir að hann hafi komið fyrr fram hér á landi en annarsstaðar.
„Þetta kemur mjög seint til okkar, við fáum tilkynningar og getum farið að bregðast við þegar það er ljóst að samheitalyf er bara með þriggja mánaða birgðir miðað við litla markaðshlutdeild. Löndin í kringum okkur, bæði Danmörku og í Finnlandi og Noregi hafa stofnanir betri yfirsýn yfir birgðirnar í landinu sínu og geta þá brugðist við fyrr. Hugsanlega hefði verið hægt að bregðast við fyrr með undanþágulyfjum,“ segir hún.
Dæmi um að fólk reyni að útvega lyfin á svörtum markaði
Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum um lyfjaskortinn og ljóst að margir eru í vandræðum. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að mörg dæmi séu um að fólk reyni að útvega lyfin á svörtum markaði.
Rúna segist ekki þekkja til þess enda væri Lyfjastofnun ekki sú stofnun sem myndi heyra sérstaklega af því.
„Svoleiðis að við höfum brýnt fyrir fólki að vera ekki að nota annara manna lyf. Og taka sér annaðhvort lyfjafrí eða tala við sinn lækni. Það eru til önnur methylphenidate lyf í landinu, nóg af þeim, sem enginn skortur er á.“