Keppnin um fallegasta garðinn hefur staðið yfir undanfarnar vikur á Vísi en frestur til að taka þátt rann út í lok ágúst. Dómnefnd Vísis hefur staðið í ströngu undanfarna daga og skoðað fjölda fallegra mynda af litríkum og fallega skipulögðum görðum víða um land.
Sigurvegarinn í leiknum hlýtur í verðlaun glæsilegan heitan pott að andvirði 285.000 kr. frá NormX. Um er að ræða pottinn Grettislaugu en hann er 1.400 lítra og tekur allt að sex manns í sæti.
„Grettislaug er sennilegast mest seldi potturinn á Íslandi í dag,“ segir Orri Stefánssonar, sölu- og verslunarstjóri NormX. „Við höfum yfir fjögurra áratuga reynslu af framleiðslu heitra potta sem hafa fengið góðar viðtökur enda sameinast þar góð gæði og gott verð. Hægt er að velja á milli þriggja lita, dökkgráan, ljósgráan og bláan.“
Dómnefnd Vísis hefur valið sex garða sem keppa til úrslita. Myndir frá görðunum eru hér fyrir neðan og hægt er að kjósa í lok greinarinnar.
Kosningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 14. september og verða úrslit tilkynnt degi síðar, föstudaginn 15. september.
Taktu þátt og kjóstu fallegasta garðinn 2023!
Dröfn Jónsdóttir og Stefán Pétursson búa í Dverghólum 17 á Selfossi. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





Alda Möller og Derek Mundell búa í Hjallabrekku 6 í Kópavogi. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





Elín Anna Ellertsdóttir og Ingvi Friðriksson búa í Vesturtúni 35 á Álftanesi. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





Ágúst Þorri Tryggvason og Hulda Sesselja Sívertsen búa í Lyngbrekku 23 í Kópavogi. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





Rannveig Guðleifsdóttir og Sigurjón Ingvason búa á Suðurgötu 70 í Hafnarfirði. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





María Haukdal Styrmisdóttir og Pétur Þór Karlsson búa í Helgalandi 8 í Mosfellsbæ. Hér eru myndir frá garðinum þeirra.





** Kosningu er lokið. Takk fyrir að taka þátt! **