Hin 33 ára tónlistarkona braut blað í sögu hátíðarinnar þegar hún hreppti verðlaun fyrir tónlistarmyndband ársins í fjórða sinn, en enginn tónlistarmaður hefur unnið verðlaunin jafn oft. Þetta kemur fram á vef BBC.
Swift vann einnig til verðlauna fyrir lag ársins, flytjandi ársins og fyrir popp tónlist ársins með lagið Anti- Hero. Samtals var hún tilnefnd í ellefu flokkum á hátíðinni.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í salnum þegar hljómveitin N'Sync gekk óvænt inn á sviðið til að veita verðlaun í flokknum popptónlist ársins.
„Fyrir tuttugu árum vorum við bara krakkar þegar við unnum verðlaunin fyrir besta popptónlistarmyndbandið með lagið Bye Bye bye. Þetta var fyrsta VMA hátíðin okkar og var okur algjörlega ómetanlegt,“ rifjar JC Chasez upp.
„Hvað er að fara að gerast, ég verð að vita það,“ segir Swift þegar hún tekur við verðlaunagripnum og lítur á fimmenningana með aðdáunaraugum.
Sveitin hætti störfum árið 2007 sem samanstóð af þeim Justin Timberlake, JC Chasez, Lance Bass, Joey Fatone og Chris Kirkpatrick.