Það breytir því ekki að það er hópur veiðimanna sem veiðir hana bara á haustinn og það er einfaldlega af þeirri ástæði að það er tími hausthængana og eins að áinn er þekkt fyrir góðar haustgöngur. Þegar Stóra Laxá er lengi í lágu vatni bíður oft mikið af laxi á Iðu eftir því að hún fari í haustvatn og þá í kjölfar góðra haustrigninga verður veiðin í ánni oft ævintýralega góð. Það er nokkuð útséð að það verður ekki staðan í ár, til þess er bara of lítið af laxi í ánni en eins og hefur komið fram á flestum miðlum er þetta ekki góða árið í veiði sem var vonast eftir. Þrátt fyrir þetta ástand eru hausthængarnir í Stóru komnir á stjá og meðal þeirra er þessi 102 sm sem veiddist í Bláhyl og þessi sem sést á myndinni fyrir neðan sem veiddist í Bergsnös en sá er líklega um 100 sm en við erum ekki með nákvæma tölu á þessum fallega hausthæng en útlitið segir bara stórlax!
