Hér má sjá þáttinn í heild sinni:
Ekki mikið fyrir sönginn
Gugusar er með þekktari tónlistarkonum landsins í dag en hún hefur spilað víða um landið sem og erlendis. Þá er hún þekkt fyrir líflega sviðsframkomu þar sem hún snýr sér mikið í hringi og dansar um allt sviðið.
„Með tímanum áttaði ég mig á því að mér finnst bara verra að standa kyrr og syngja, mér finnst ekkert rosalega gaman að syngja ef ég á að vera alveg hreinskilin. En mér finnst skemmtilegt að koma fram og gera eitthvað steikt sem fær fólk til að hugsa. Svo er það bara búið að aukast með tímanum, núna er þetta meiri dansar og skrýtnir dansar.“
Myndi ekki dansa svona á klúbbnum
Gugusar segist nýlega hafa áttað sig á því að hún sækir innblásturinn til tónlistarkonunnar Siu og dansarans hennar Maddie Ziegler. Á sínum yngri árum lærði hún alla dansana úr tónlistarmyndböndum Siu sem eru sannarlega listræn og út fyrir kassann. Má þar meðal annars nefna myndbandið við lagið Chandelier.
„Þetta er svo bara einhver karakter sem ég fer í. Ég myndi ekki dansa svona venjulega.“
Ekki á klúbbnum?
„Nei“, segir Gugusar hlæjandi og bætir við: „Þetta er 100% einhver karakter sem ég dett inn í og mér finnst ótrúlega gaman að koma fram.“
Myndi ekki trúa því að þetta yrði vinnan hennar
Þrátt fyrir að líða vel á sviðinu segist Gugusar vera feimin að eðlisfari.
„Já ég held ég sé svolítið feimin týpa og ég var það sérstaklega þegar ég var yngri. Ef ég myndi segja við yngri mig að þetta væri að fara að vera vinnan þín, að hoppa og skoppa uppi á sviði, þá veit ég ekki hvað ég myndi segja.“
Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.