Umræðan kemur í skugga nýfallins úrskurðar Samkeppniseftirlitsins í máli skipafélaganna en Hanna segir sína umræðu hafa víðari skírskotun en það tiltekna mál. Áður en hún hélt að ræðupúlti Alþingis sló fréttastofa á þráðinn til Hönnu og var hún spurð hverju hún vildi ná fram í umræðum dagsins.
„Við vitum það öll að virk samkeppni skilar heimilum betri þjónustu, fjölbreyttari vöru og lægra verði, það er alveg ljóst að stjórnvöld gegna síðan lykilhlutverki í að efla og vernda samkeppni á öllum sviðum. Umræðan hins vegar, þegar Samkeppniseftirlitið okkar fellir úrskurði eins og núna var nýverið – og þetta hefur gerst áður – þá er henni fljótlega stýrt yfir í það að velta því upp hvort Samkeppniseftirlitið hafi farið offari, hvort þetta sé ekki of langt gengið og að þetta sé atvinnulífinu fjötur um fót, frekar en að hagsmunasamtök atvinnulífsins, fjölmiðlar, neytendur og stjórnmálamenn ræði áhrifin á hag heimila og á atvinnulífið í heild, það er að segja þessa kjölfestu sem lítil og meðalstór fyrirtæki eru og yfir í það að það sé nú gott að hafa virkt samkeppniseftirlit,“ útskýrir Hanna Katrín.
Hægri pólitík að vilja heilbrigða samkeppni
Hanna segir að það sé hægri pólitík að vilja heilbrigða samkeppni og til að tryggja hana skipti virkt eftirlit máli. Hin kveikjan að þessari sérstöku umræðu á þingi er líka sú að Hönnu Katrínu þykir virkt samkeppniseftirlit skipta höfuðmáli sérstaklega við núverandi efnahagsaðstæður þar sem verðbólga eykst og stýrivextir hafa hækkað umtalsvert.
„Sífelldar verðlagshækkanir gera okkur öll frekar dofin fyrir því hver eðlileg þróun verðlags er. Við svona aðstæður er nefnilega býsna hætt við því að mýsnar fari á kreik þegar kötturinn er læstur inni, svo ég grípi til myndlíkingar,“ segir Hanna Katrín.
Verði að auka skilvirkni
Hún segir þá að Samkeppniseftirlitið sé ekki hafið yfir gagnrýni og að skilvirkni sé ábótavant og að málin geti tekið allt of langan tíma. „Það þarf að skoða. Hafa stjórnvöld búið þannig um hnútana að eftirlitið hafi nægilegt svigrúm til að sinna eftirliti með samkeppnisbrotum? Síðan má líka alveg skoða lögin,“ segir Hanna og útskýrir að samrunamál fyrirtækja fái forgang því þau þurfi að leysa innan tiltekins tímaramma. Mál er lúti að rannsókn á ólögmætri markaðsmisnotkun fari aftar í röðina og allt þetta þurfi að rýna vel.
„Stóra málið kannski er þetta að það er tilhneiging til þess að umræðunni sé stýrt yfir í annað en það sem er lykilatriði í þessu og það er að virk samkeppni er eitt stærsta hagsmunamál, annars vegar heimila landsins og fyrirtækja hins vegar og við megum ekki láta einhverja aðra nálgun villa okkur sýn.“