Ofvirkur og félagar hans í Ármanni unnu afar sannfærandi sigur er liðið mætti ÍA í fimmtu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í gær. Liðið hafði yfirhöndina frá upphafi til enda og situr nú í öðru sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm umferðir.
Ekki nóg með að vinna öruggan sigur heldur sýndi ofvirkur einnig frábær tilþrif þegar hann var einn á móti tveimur og lét sig vaða inn í reykinn þar sem hann felldi báða andstæðinga sína og kláraði lotuna.
Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.