Þingflokkurinn fagni afsögn eigin formanns sem hans besta verki Magnús Jochum Pálsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 14. október 2023 21:32 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru sammála um að ríkisstjórnin sýndi veikleika sína með ráðherraskiptum. Halda ætti stjórninni sofandi áfram í öndunarvél og hún minnti á dauðadæmdan fótboltaþjálfara. Stöð 2 Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skiptust á ráðuneytum í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja stjórninni haldið í öndunarvél og að hún minni á dauðadæmdan þjálfara sem fær stuðningsyfirlýsingu frá félagi sínu. Ólafur Harðarson telur að Bjarni sé nú búinn að koma böndum á villiketti flokksins.
Bjarni Benediktsson kynnti nýjan fjármálaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, á blaðamannafundi í morgun. Sjálfur sagðist Bjarni hafa hugsað vel um sína stöðu innan ríkisstjórnarinnar en ákveðið að taka við utanríkisráðuneytinu. Það kæmi ekki annað til greina en að formaður Sjálfstæðisflokksins fylgdi ríkisstjórnarsamstarfinu áfram eftir. Aðspurður hvort hann axlaði ábyrgð með því að fara úr einu ráðuneyti í annað sagðist hann fyrst og fremst vilja skapa frið í fjármálaráðuneytinu. Þá gaf hann lítið fyrir niðurstöðu könnunar Maskínu þar sem sjötíu prósent þátttakenda töldu ekki rétt að hann tæki við öðru ráðherraembætti. „Ég sæki mitt umboð til flokksmanna Sjálfstæðisflokksins og við erum stjórnmálaafl sem stendur saman og ég finn fyrir miklum stuðningi frá mínum flokksmönnum sem er það sem fyrst og fremst skiptir mig máli,“ sagði Bjarni í dag. Ekkert nýtt að ríkisstjórnin standi tæpt Fréttastofa ræddi við þingmenn stjórnarandstöðunnar, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, þingmann Viðreisnar og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þingmann Miðflokksins, um ráðherraskiptin. Báðum fannst þeim útspil ríkisstjórnarinnar til merkis um veikleika hennar. Þorbjörg Sigríður sagði blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sýna hvað ríkisstjórnin stæði veikt.Stöð 2 „Þetta var kannski dagur um ekki neitt en tíðindin kannski, að ríkisstjórn sem þarf á miðju kjörtímabili að halda blaðamannafund um það að hún ætli að halda störfum sínum áfram stendur auðvitað sjúklega tæpt. En það er ekkert nýtt í því heldur,“ sagði Þorbjörg Sigríður aðspurð hvernig ráðherraskiptin blöstu við henni. „Og að ríkisstjórn sem er búin að starfa saman í sex ár þurfi að halda vinnufundi til þess að gera dauðaleit að erindi sínu stendur líka tæpt,“ bætti hún við. „Mér sýnist að niðurstaðan þarna hafi einfaldlega verið: Formennirnir þrír ætla að halda ríkisstjórninni sofandi í öndunarvél í tvö ár í viðbót.“ Fagna afsögn eigin formanns sem því besta sem hann hefur gert Sigmundur Davíð, þú hefur ekki látið þitt eftir liggja í að gagnrýna ríkisstjórnina eða leiðbeina henni. Er einhverra leiðbeininga þörf þarna? „Þetta er nokkur veginn eins og Þorbjörg lýsti. Þrátt fyrir að við höfum séð þingflokk Sjálfstæðismanna fagna afsögn eigin formanns sem einhverju því besta sem hann hefði nokkurn tímann gert þá kom mér samt á óvart að þeir skyldu ekki nýta stöðuna til að treysta sessinn í ríkisstjórn,“ sagði Sigmundur. „Í staðinn tjóðruðu þeir sig við mastrið á sökkvandi skipi og leita kannski núna í smiðju Framsóknarflokksins með nýtt slagorð. Eins og frægt var þá sagði Framsókn fyrir síðustu kosningar Er ekki bara best að kjósa Framsókn? og nú segir Sjálfstæðisflokkurinn Þarf þetta ekki bara að vera svona?“ Sigmundur Davíð furðaði sig á því hvað Sjálfstæðismenn fögnuðu afsögn formannsins sem hans besta verki.Stöð 2 Ríkisstjórnin minni á dauðadæmdan þjálfara Formenn flokkanna hafa talað um að ríkisstjórnin standi mjög traustum fótum. Finnst þér þetta vera merki um það? „Nei, auðvitað er það bara eitthvað spaug. Alltaf kemur aftur og aftur í hugann myndin af Comical Ali [Muhammad Saeed al-Sahhaf] þegar hann var að lýsa stórkostlegum sigrum Írakshers í fyrra Íraksstríðinu. Svo gera menn líka samlíkingar við íþróttafélög þar sem er lýst yfir eindregnum stuðningi við þjálfarann akkúrat daginn áður en hann er rekinn. „Þetta er búið að vera oflof, finnst mér, hjá stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar, bæði í dag og í gær,“ sagði Sigmundur að lokum. Bjarni njóti trausts samstarfsflokkanna og þingflokksins Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálaprófessor, greindi stöðuna í beinni útsendingu kvöldfrétta Stöðvar 2 með Sindra Sindrasyni, fréttaþuli. „Fólki greinir á hvort Bjarni sé að axla ábyrgð. Hvað segir þú?“ spurði Sindri Ólaf. „Þetta er álitamál. Við höfum kannanir sem sýna að sjötíu prósent þjóðarinnar vilja að hann segi af sér, það er að segja hætti í ríkisstjórninni. Það sem kom mér meira á óvart var að fjórðungur kjósenda Sjálfstæðisflokksins er sama sinnis. Þannig að verulegur hluti þjóðarinnar telur hann að minnsta kosti ekki axla nægilega ábyrgð,“ sagði Ólafur. „Hins vegar nýtur hann trausts samstarfsflokkanna og hann virðist njóta mikils trausts í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Í þessu sambandi er það sem skiptir máli en ekki einhverjar mælingar í könnunum,“ sagði Ólafur. Sindri Sindrason og Ólafur Þ. Harðarson ræddu um ákvörðun Bjarna að færa sig úr fjármálaráðuneytinu í utanríkisráðuneytið.Stöð 2 Framtíð stjórnarinnar hefði verið í meiri hættu án Bjarna „Svo eru það þeir sem segja: Það gengur ekki að formaður stjórnmálaflokks sem er í ríkisstjórn sé ekki með ráðherrastól og komist ekki á ríkisstjórnarfundi,“ sagði Sindri þá. „Það hefur að vísu gert áður. Til dæmis var Þorsteinn Pálsson, eftir að hann tók við formennsku, þá var hann ekki strax í ríkisstjórninni. En það olli alls konar vandræðum,“ sagði Ólafur og bætti við „Og ég held að það sé alveg rétt að það er mjög ankannalegt að formaður eins stjórnarflokksins eigi ekki sæti í ríkisstjórninni.“ „Ég held reyndar að ef Bjarni hefði kosið að hætta í ríkisstjórninni þá hefði framtíð þessa stjórnarsamstarfs verið í umtalsverðri hættu, mun meiri hættu heldur en núna eftir þessa leiki í þessari stöðu,“ sagði Ólafur. Bjarni búinn að koma böndum á villikettina „Þetta er ekkert einsdæmi. Þetta hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur,“ sagði Sindri. „Þegar svona kemur upp á þá er algengast á Norðurlöndunum að viðkomandi ráðherra segi bara af sér og komi svo aftur eftir ekkert mjög langan tíma. „Hins vegar sá ég að það er mjög nýlegt dæmi, frá þessu ári, í Danmörku sem er mjög forvitnilegt vegna þess að það er í rauninni mjög svipað og það sem er að gerast hér. Varnarmálaráðherrann, Jakob Ellemann-Jensen, formaður Venstre, eins af þremur stjórnarflokkum. Hann lenti í því í byrjun árs að segja þinginu ósátt varðandi vopnasölu, þeir voru að kaupa vopn af Ísraelsmönnum. Jakob Ellemann-Jensen, formaður Venstre, var varnarmálaráðherra Danmerkur en skipti yfir í efnahagsráðuneytið.EPA „Þegar að þetta kemst upp þá segir hann Embættismenn mínir gáfu mér rangar upplýsinga, ég var í góðri trú þegar ég sagði þinginu ósatt og ég bið þingið afsökunar. Hann lét ráðuneytisstjórann síðan hætta, sagði af sér sem varnarmálaráðherra, hélt áfram sem varaforsætisráðherra eins og hann var áður og tók við nýju ráðuneyti, efnahagsráðuneytinu,“ sagði Ólafur. „Þannig þessi kaup gerist víðar á eyrinni heldur en hér,“ sagði Ólafur. Aðspurður hvort ríkisstjórnin væri sterkari eða veikari eftir daginn í dag sagði Ólafur að hún væri hvorugt. Hins vegar væri búið að eyða þeim vafa um að ríkisstjórninni héldi út kjörtímabilið. „Og mér sýnist að sérstaklega Bjarna hafi tekist að koma nokkrum böndum á órólegu deildina, eða villikettina eins og var nú sagt einu sinni, í Sjálfstæðisflokknum,“ sagði hann að lokum.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Viðreisn Miðflokkurinn Afsögn Bjarna sem fjármálaráðherra Mest lesið Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Erlent Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá Innlent Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Erlent Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Erlent Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Innlent Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Innlent Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Innlent Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Innlent Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Innlent Fleiri fréttir Dómur sterabolta mildaður verulega vegna tölvubréfs dómara Ólíklegt að Bandaríkjamenn gefi Íslendingum valið Hefja formlega rannsókn á SVEIT og Virðingu Veiðifélag fær þriggja milljóna sekt vegna innflutnings á seiðum Gaman að fagna 25 ára afmæli í ríkisstjórn Launalausir starfsmenn greiða rafmagnsreikninginn Bílastæðasjóður græddi 270 milljónir á stækkun gjaldsvæðis Enn óvissa á mörkuðum og Kristrún vill flýta sér hægt Rangur maður grunaður um að valda sjónskerðingu á myrku dansgólfi Alþingi komið í páskafrí „Það verður almannavá, dauðsföll munu færast á annað stig“ Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum - Hvert stefnir Ísland? Tilfærsla styrkja til tekjulægri gæti seinkað rafbílavæðingu Rannsókn á hrottalegri frelsissviptingu og fjárkúgun lokið Lögreglan komin á vettvang þegar í ljós kom að bíllinn var rétt hjá NEL telur orðfæri lögreglumanna ekki tilefni til endurupptöku Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Esjustofa í endurnýjun lífdaga Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Bandaríkin muni semja Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Sjá meira