Birgir var einn gesta í Silfrinu á RÚV síðastliðinn mánudag, 23. október, þar sem kvennaverkfallið var til umræðu. Birgir sagði meðal annars kynbundið ofbeldi landlægt í fluginu. Fyrirtæki þurfi að geta og þora að bregðast við.
Hann ræddi einnig Flugfreyjufélag Íslands.
„FFÍ, sem er félagið sem okkar starfsfólk átti að vera í samkvæmt ASÍ á sínum tíma, hefur einn viðsemjanda og það er Icelandair,“ sagði Birgir og spurði svo hvort stéttarfélag flugfreyja- og þjóna hjá Play væri eitthvað gulara en FFÍ. Flugfreyjur- og þjónar hjá Play eru í Íslenska flugstéttarfélaginu, ÍFF.
Stjórn félagsins segist í yfirlýsingu finna sig knúna til að leiðrétta fullyrðingar Birgis.
„Birgir Jónsson forstjóri Play gaf í skyn að FFÍ væri gult stéttarfélag undir hatti Icelandair og staðhæfði að Icelandair væri eini viðsemjandi stéttarfélagsins,“ segir í yfirlýsingunni.
Bendir stjórnin á að Flugfreyjufélag Íslands sé sjötíu ára gamalt stéttarfélag og eina stéttarfélag flugfreyja- og þjóna á Íslandi. Félagið hafi staðið að samningagerð fyrir hönd félagsmanna sinna sem hafi starfað hjá ýmsum íslenskum flugfélögum, þar á meðal Flugleiðum, Loftleiðum, Icelandair, Flugfélagi Íslands, Arnarflugi, Íslandsflugi, Iceland Express, Wow og Niceair.
„Play er eitt fárra flugfélaga sem hefur ekki liðkað fyrir veru sinna flugfreyja og -þjóna innan banda FFÍ heldur farið þá leið að semja sjálft við sína starfsmenn undir formerkjum Íslenska flugstéttarfélagsins (ÍFF) og situr þar með beggja vegna borðsins,“ segir í yfirlýsingunni. Fram kemur á forsíðu heimasíðu FFÍ að nú hafi félagið aðeins Icelandair og Flugfélag Íslands sem viðsemjendur. Flugfélag Íslands, síðar Air Iceland Connect, sameinaðist Icelandair árið 2021.
Segir þá að Play fylgi þar með ekki leikreglum sem almennt viðhafist á vinnumarkaði hér á landi.
„Þetta veit Birgir Jónsson mætavel og því furðar stjórn FFÍ sig á þeim fullyrðingum sem komu frá honum í Silfrinu. Stjórn FFÍ fagnar því að Birgir hafi í þættinum lýst yfir rétti kvennastétta til mannsæmandi launa og hvetur því Birgi eindregið til að endurskoða sína afstöðu og liðka fyrir innkomu sinna flugfreyja og -þjóna í FFÍ og hefja undirbúning að kjarasamningsviðræðum þar sem hag þeirra er best borgið.“