Slysið varð í september 2016 í skemmtidagskrá á vegum starfsmannafélags leikskólans þegar starfsmenn spiluðu svokallaðan blöðrubolta. Samstarfsmaður konunnar hljóp á hana þannig að hún datt illa, sleit krossband og hluta af innra hliðarbandi á vinstra hné. Kennarinn var óvinnufær í tvo mánuði á eftir og er varanleg örorka hennar metin fimmtán prósent.
Hæstiréttur samþykkti í mars síðastliðnum áfrýjunarbeiðni Reykjavíkurborgar en deilt var um hvort slysið hafi átt sér stað á vinnutíma eða í frítíma. Borgin leitaði til Hæstaréttar eftir að Landsréttur dæmdi borgina til að greiða konunni skaðabætur eins og um væri að ræða vinnuslys.
Landsréttur hafði áður sýknað borgina en einn dómara við Landsrétt var síðar talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. Málið rataði á sínum tíma til Hæstaréttar og aftur til Landsréttar.
„Það kom mér mjög mikið á óvart að borgarlögmaður skyldi falla frá þessu, sérstaklega af því að það var í lok vinnudags daginn áður en málflutningur átti að fara fram fyrir Hæstarétti,“ segir Agnar Þór Guðmundsson, lögmaður leikskólakennarans, en málið átti að taka fyrir 25. október síðastliðinn.
Agnar segir engar skýringar hafa borist frá borgarlögmanni um ákvörðun sína en í aðdraganda þess hafi Hæstiréttur verið búinn að beina spurningum til aðila málsins sem rétturinn óskaði svara við.

„Það var búið að afla svara við þessum spurningum og þá vildi hann fá frekari svör við ákveðnum spurningum, sem var aflað svara við. Í kjölfarið virðist borgarlögmaður hafa metið það sem svo að Hæstiréttur væri ekki að fara að bæta neinu við dóm Landsréttar og falla frá áfrýjun í málinu. Með því stendur dómur Landsréttar.“
Er þetta fordæmisgefandi?
„Þar sem dómur Landsréttar, sem flokkar þetta sem vinnuslys, stendur í málinu er hægt að horfa til þess ef upp koma sambærileg tilvik,“ segir Agnar.
Hann fagnar niðurstöðunni.
„Umbjóðandi minn hélt alan tímann fram að þetta væri vinnuslys enda gerðist þetta á vinnutíma á vinnustað en borgarlögmaður var ekki sammála því. Auðvitað gleðst ég fyrir hennar hönd og er sjálfur ánægður með þessa niðurstöðu.“