Junior Sanchez sá sjálfur um förðunina en hann er bæði förðunarfræðingur og hárstílisti.

„Við vorum að fara fjögur saman á Lux og það tók mig um fjórar klukkustundir að sjá um förðunina þeirra. Eftir það var lítill tími eftir og ég kláraði förðunina mína á 20 eða 30 mínútum. Það var töluverð áskorun," segir hann. Hópurinn fékk mikla athygli í miðbænum.
„Við löbbuðum frá Hlemmi niður á Lux og á leiðinni báðu margir mig um að fá taka myndir, við vorum hópur skemmtilegra nunna. Við hittum meira að segja hina skemmtilegu Teletubies og marga fleiri. Á síðasta ári bjó ég til Catrina, sem er vinsæl í Mexíkó fyrir dag hinna látnu, og þekktur ljósmyndari bað um að fá að taka myndir af mér," segir Junior.
Hann klæðir sig upp á hrekkjavökunni á hverju ári og segir frelsi fylgja því að fara í búning.
„Það er mjög skemmtilegt að klæða sig upp, þú losar um mikinn ótta, þú hættir í smástund að spyrja hver þú getur verið og hvernig þú vilt gera hlutina. Nunnan lét mig skemmta mér mjög vel. Lux heldur líka alltaf ótrúlegar veislur. Þetta var fyrsta hrekkjavakan mín á Íslandi og ég hafði mjög gaman af.

„Vinsældir The Nun stóðu upp úr hjá mér þetta kvöld. Hún er persóna sem verður áfram í tísku og það var heiður að endurskapa hana á sem bestan hátt. Ég þakka öllum sem kusu förðunina mína, þegar upp er staðið er þetta ótrúleg list. Mín stærsta ósk var að vinna búningakeppnina og geta þannig fengið námsstyrk í Reykjavík Makeup School, ég held að það sé draumur hvers förðunarfræðings," segir Junior Sanchez.