Stjórnarandstaðan sprengdi reyksprengjur og kveikti eld í þingsal Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2023 07:10 Það er óhætt að segja að það hafi kastast í kekki á þinginu í Albaníu í gær. AP/Florian Abazi Stjórnarandstöðuþingmenn í Albaníu sprengdu reyksprengjur og kveiktu eld í miðjum þingsal í gær til að freista þess að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlög 2024.
Þingmennirnir bjuggu til stólahrúgu í salnum og kveiktu eldinn á sama tíma og öryggisverðir börðust við að halda mótmælendum frá forsætisráðherranum Edi Rama. Eldurinn var slökktur af öðrum þingmönnum. Sali Berisha, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem er bæði fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi forseti landsins, hefur sakað stjórnvöld um að reyna að þagga niður í stjórnarandstöðunni. Þrátt fyrir uppþotin voru fjárlögin samþykkt en Berisha sagði eftir á að ekki yrði aftur snúið og að stjórnarandstaðan myndi tryggja að fleiri kæmu að ákvörðunum en Sósíalistaflokkur Rama. Berisha og tengdasonur hans hafa verið ákærðir í spillingarmáli vegna jarðarkaupa en pólitíkusinn er sakaður um að hafa notað áhrif sín þegar hann var forsætisráðherra frá 2005 til 2009 til að tryggja nákomnum hagfellda niðurstöðu í ýmsum málum. Tengdasonurinn var handtekinn en sem þingmaður nýtur Berisha friðhelgi. Berisha hefur sakað Rama um að vera að baki ákærunum.
Albanía Mest lesið Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Fulltrúi borgarinnar harðneitað að tala nema á íslensku Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Erlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira