Eyjamenn máttu þola enn eitt tapið á tímabilinu er liðið mætti ÍA í gær og situr liðið því enn á botni Ljósleiðaradeildarinnar án stiga.
Liðið sýndi þó fína takta undir lok leiks þegar leikmenn snéru bökum saman og felldu fjóra Skagamenn á einu bretti. Varð það til þess að ÍBV vann sína fjórðu lotu í viðureign gærkvöldsins, en Skagamenn unnu að lokum öruggan sigur, 16-4.
Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.