Eins og fram hefur komið hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtekið Eddu Björk Arnardóttur vegna norrænnar handtökuskipunar. Hún hafði verið eftirlýst síðan í fyrradag.
Í sumar var greint frá því að norsk yfirvöld hafi krafist þess að Edda yrði handtekin og framseld til Noregs vegna forræðisdeilna hennar við eiginmann sinn fyrrverandi. Sá er íslenskur en býr í Noregi. Hann fer einn með forsjá sona þeirra þriggja og eru þeir með lögheimili hjá honum.
Drengirnir ekki með Eddu
„Undirritaður er lögmaður föður í máli sem hefur verið í fjölmiðlum iðulega verið kennt við norsku drengina. Í gær var móðir drengjanna handtekin. Þess má geta að drengirnir voru ekki með móður er hún var handtekin.“
Segir í yfirlýsingunni að faðirinn hafi ekki viljað fara með deilur foreldranna í blöðin til að halda hlífðarskyldi yfir börnunum. Hins vegar hafi móðir ítrekað farið með málið í fjölmiðla og sett fram einhliða frásögn.

Dómstólar bæði í Noregi og á Íslandi, á tveimur dómstigum, hafi ávallt úrskurðað föður í hag eftir að hafa skoðað málið gaumgæfilega. Þá verði að hafa í huga að lögreglan í Noregi hafi óskað eftir því að móðirin verði framseld til Noregs og það ekki að ástæðulaus, að því er segir í yfirýsingunni.
Fólk sem hafi drengina brjóti lög
„Það er nauðsynlegt að þessir drengir finnist sem fyrst. Þá ber að geta þess að fólk sem er með þessa drengi í sinni umsjón er að brjóta íslensk hegningarlög og það má búast við að fá á sig kæru vegna þess,“ segir í yfirlýsingunni.
„Þá er einnig ljóst að sá sem reynir að villa um fyrir yfirvöldum, til dæmis með „statusum“ eða myllumerkinu: „Drengirnir eru hjá mér“ eða álíka er ekki síður alvarlegt og saknæmt athæfi. Með vísan til framangreinds og að endingu myndi undirritaður því vilja biðla til almennings sem hafa einhverja vitneskju um dvalarstað drengjann að hafa samband við lögreglu.“