Þorgils Þorgilsson, verjandi eins mannsins, staðfestir að málinu hafi verið áfrýjað til Landsréttar í samtali við Vísi. RÚV greindi fyrst frá áfrýjuninni.
Nítján ára karlmaður, hlaut tíu ára fangelsisdóm fyrir manndráp. Tveir félagar hans í kringum átján ára aldur fengu tveggja ára dóm fyrir stórfellda líkamsárás.
Sautján ára stúlka fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm til fimm ára, en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hennar máli ekki verið áfrýjað að svo stöddu. Hún tók árásina upp á myndband, sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Fimm þúsund krónur ástæðan
Í dómi héraðsdóms kom fram að drengirnir hefðu setið ásamt hinum látna á Íslenska rokkbarnum kvöldið sem manndrápið átti sér stað. Þar hafi þeir neytt kókaíns um stund, sem sakborningarnir virtust hafa skaffað.
Í framburði eins sakborninga segir að samið hafi verið um að maðurinn myndi borga fimmtán til tuttugu þúsund krónur fyrir efnin. Hann hafi tekið fjórar línur af efninu á barnum og kröfðust ákærðu fimm þúsund króna fyrir hverja þeirra. Seinna hafi verið samið um að fimm þúsund krónur myndu nægja fyrir kókaínið.
Sakborningarnir hafi labbað út af Íslenska rokkbarnum ásamt manninum og segir dómari að ekkert hafi bent til þess að þaðan hafi þau gengið út. Þrátt fyrir það hafi piltarnir ráðist gegn manninum á bílastæði fyrir utan staðinn og stúlkan tekið það upp.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til þess að alvarlegt ósætti hafi komið upp á milli sakborninganna og mannsins. Jafnframt bendi ekkert til þess að hinn látni hafi verið „aggresífur“ eða árásargjarn gagnvart einhverju þeirra. Ekki sé útlit fyrir því að hann hafi stofnað til átakanna, eða að sakborningunum hafi staðið ógn af honum, líkt og þeir héldu fram fyrir dómi.
Dómarinn í héraði var ómyrkur í máli og lýsti árásinni sem „leik kattarins að músinni“.