Í fréttum Stöðvar 2 var farið á fund Samtaka ferðaþjónustunnar á Hótel Reykjavík Grand í dag. Þar spurðu forystumenn greinarinnar hvert framlag hennar væri til samfélagsins og fengu hagfræðinginn Magnús Árna Skúlason til að svara. Niðurstaða hans er 92,3 milljarða króna skattspor í fyrra, ef þröngt er reiknað, en 155,5 milljarðar króna, ef víðara skattspor er notað.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir það tímamót að fá slíka útreikninga fram í fyrsta sinn.
„Þannig að þetta eru gríðarlega góð tíðindi, að hún er í rauninni að skila 160 milljarða króna skattspori á árinu 2022. Og ennþá ánægjulegra er það að við sjáum fram á að það muni hækka töluvert mikið fyrir árið 2023,“ segir Bjarnheiður.
Hún segir útreikningana þó byggða á gömlum skilgreiningum um hvað sé ferðaþjónusta og nefnir dæmi um mikilvæga þætti sem vanti inn.
„Það er til dæmis ekki inni í þessu eldsneytisnotkun ferðaþjónustunnar. En skattar af henni, eldsneytisgjöld og þess háttar, voru yfir sjö milljarðar á árinu 2022. Og munar nú um minna.
Og það er ekki inni í þessu gjöld til þjóðgarða og friðlýstra svæða, sem eru ábyggilega hátt í milljarður.“
Þá vanti inn fjármagnstekjuskatt af útleigu á heimagistingu.

Icelandair með hátt í fjögur þúsund stöðugildi reiknar líka sitt skattspor. Forstjórinn Bogi Nils Bogason segir að á árinu 2022 hafi það numið 27 milljörðum króna.
„Bara beinir skattar og gjöld sem Icelandair og starfsfólk Icelandair er að borga inn í kerfið.
Það er væntanlega talsvert meira á þessu ári því að bæði hefur verið talsverður vöxtur á milli ára og svo hefur kostnaður hækkað, laun og þess háttar, sem skilar sér beint inn í ríkissjóð í gegnum tekjuskatt og tryggingagjald og þess háttar.
Þannig að það er væntanlega einhvers staðar á milli þrjátíu og fjörutíu milljarðar á þessu ári,“ segir Bogi Nils.
Áætlað er að 35 prósent útflutningatekna Íslands í fyrra hafi komið frá ferðaþjónustu.
„Ferðaþjónustan er að ná vopnum sínum og fyrra hlutfalli, sem fór hæst í fjörutíu prósent. Og við reiknum með að það nálgist það hlutfall á árinu 2023,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér: