Tvær klukkur standa við Austurvöll. Önnur er uppi í Dómkirkjuturni og hefur þjónustað vegfarendur um árabil. Hin klukkan er öllu nýrri og henni hefur aðeins misfarist að sinna sínu hlutverki.
Síðarnefnda klukkan var reist utan á viðbyggingu gamla Landsímahússins, nú Iceland parliament hótel, í ársbyrjun 2021 og vakti talsverða athygli. Ekki síður þótti það svo eftirtektarvert fáeinum mánuðum síðar þegar hin tröllvaxna klukka byrjaði að tifa.
En það leið ekki á löngu áður en glöggir vegfarendur tóku eftir því að ekki var allt með felldu; myndin hér fyrir neðan er tekin í lok nóvember síðastliðnum, klukkan tuttugu mínútur yfir fjögur síðdegis. En klukkan er á algjörum villigötum; vísarnir eru stopp í tuttugu mínútur í eitt.

Helga Björk Jósefsdóttir er rekstrarstjóri Iceland Parliament hótels.
„Oft þegar maður er að gera eitthvað nýtt koma upp vandamál og þessi klukka hefur verið vandamál hérna á Iceland Parliament hótelinu,“ segir Helga.
„Mekanisminn inni í henni hefur verið að gera okkur lífið leitt. Við höfum verið að taka hana niður, reyna að laga á íslensku verkstæði og sett hana svo upp aftur. En það hefur ekki gengið þannig að nú er búið að taka mekanismann niður og vísana og hún er á leiðinni í viðgerð til útlanda akkúrat núna.“

Það er eigandi hússins, Lindarvatn ehf., sem ber ábyrgð á klukkunni og stendur fyrir viðgerðinni. Á meðan bíður klukkan berstrípuð án vísa og gangverks á veggnum. Vonast er til þess að hún verði komin aftur í gagnið nú í janúar.
„Þetta er eitthvað sem er tekið eftir. Þetta skiptir okkur og fólk sem gengur hérna um máli,“ segir Helga.