Samkvæmt upplýsingum frá Landaspítala var um að ræða dreng og er hann fyrsta barn foreldranna.
Þegar fréttastofa hafði samband við fæðingardeildir heilbrigðisstofnana á Akranesi, Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ á tíunda tímanum höfðu enn engin börn fæðst á hinu nýja ári, þó að einhverjar konur væru í nú í miðri fæðingu.
Á nýársdegi í fyrra kom fyrsta barn ársins í heiminn tuttugu og eina mínútu yfir miðnætti á Landspítalanum í Reykjavík, en á nýársdegi 2022 var það stúlkubarn sem kom í heiminn í sjúkrabíl í Eyjafirði klukkan 0:23. Bíllinn var þá á leið frá Siglufirði til Akureyrar, en þurfti að stoppa á veginum milli Dalvíkur og Akureyrar þegar stúlkan ákvað að koma í heiminn.