Frá þessu er greint á vef ráðuneytisins, en Guðmundur Árnason lét af embætti ráðuneytisstjóra um nýliðin áramót og stendur til að auglýsa eftir nýjum ráðuneytisstjóra.
„Tómas er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics.
Hann var skipaður skrifstofustjóri í ráðuneytinu árið 2018. Áður hafði hann m.a. verið stjórnandi á EFTA-skrifstofunni í Brussel og unnið að efnahags- og fjármálamarkaðsmálum í stjórnarráðinu frá árslokum 2008,“ segir í tilkynningunni.