Þetta segir í nýrri uppfærslu um stöðu mála í Grindavík á vef Veðurstofu Íslands. Sérfræðingar muni halda áfram að meta gögn frá GPS mælum á svæðinu til að fá heildarmat á stöðuna. Einn af mælunum, sem var staðsettur norður af Grindavík, hafi farið undir hraun, en rúmlega tuttugu GPS mælar séu á svæðinu sem notast er við.
Skjálftavirkni hafi verið væg yfir kvikuganginum síðasta sólarhringinn.
Áfram hætta innan Grindavíkur
Þá segir að áfram sé hætta innan Grindavíkur í tengslum við sprungur og að jarðvegur hrynji ofan í þær. Miklar hreyfingar hafi átt sér stað í tengslum við sigdalinn í austurhluta bæjarins. Hreyfingarnar hafi að mestu leyti orðið á þeim sprungum sem mynduðust 10. nóvember og þegar höfðu verið kortlagðar.
Gasmengun hafi mælst við vinnu ofan í brunnum tengdum veitukerfi innan Grindavíkur í gær. Veðurstofan vakti ekki staðbundna gasmengun innan Grindavíkur. Skoða þurfi betur hvort gasmengunin sé tengd því að kvika liggur mjög grunnt á svæðinu.
„Það skal tekið fram að hættuleg gasmengun er meðal þeirra atriða sem nefnd eru í hættumatinu sem nú gildir fyrir Grindavík.“
Nýtt hættumatskort tekur gildi síðdegis
Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort. Engar breytingar eru á heildarhættumati á svæðunum frá því sem áður var. Kortið tekur gildi klukkan 15 í dag og gildir fram á föstudaginn 19. janúar klukkan 15 að öllu óbreyttu.
