Liðin spiluðu á Anubis og sigruðu ÍA fyrstu lotu leiksins í vörninni. Sigurtilfinningin átti þó eftir að flýja þá fljótt, þar sem Ármann tóku leikinn jötnagripi og sigruðu allar loturnar sem eftir lifðu hálfleiks.
Sjálfstraustið skein af leikmönnum Ármanns og stigu þeir varla feilspor gegn veiku liði ÍA. Lítið mátti setja út á leik þeirra bláu, en ÍA virtust þó aldrei sigurstranglegir í fyrri hálfleik.
Staðan í hálfleik: ÍA 1-11 Ármann
Skammbyssulota seinni hálfleiks fór eins og hún fyrri, en ÍA virtust hafa yfirhöndina þegar bæði lið höfðu skammbyssur. Önnur lota seinni hálfleiks fór til þeirra sömuleiðis og komu þeir stöðunni því í 3-11 áður en Ármann fundu loks sigurloturnar til að hrifsa sigur í viðureigninni.
Lokatölur: ÍA 3-13 Ármann
ÍA, sem er ekki skugginn af sjálfum sér eftir að öllum leikmönnum liðsins var skipt út, eru enn í áttunda sæti með 10 stig. Ármann halda sér áfram í umræðu um toppbaráttu með 18 stig og eru í þriðja sæti deildarinnar.