NIVEA Cellular Expert Lift línan þykir mjög kraftmikil í baráttunni gegn ótímabærri öldrun og þar er það innihaldsefnið, bakuchiol (bakúsíól) sem skilar sjáanlega unglegri húð. NIVEA Cellular 3-Zone Lifting Serumið inniheldur bakuchiol í tíu sinnum hærri styrk en áður hefur verið gert hjá NIVEA. Þetta nýstárlega virka efni er milt fyrir húðina en eins áhrifaríkt og retínól og eykur eigin kollagenframleiðslu í húðinni á einungis 4 klukkustundum, samkvæmt sérfræðingum NIVEA.

NIVEA Cellular 3-Zone Lifting Serumið virkar djúpt á frumustig húðarinnar og á einni viku má strax sjá stinnandi áhrif í andliti auk þess sem það dregur sýnilega úr hrukkum og lyftir línum í andlitinu. Á hálsi verður húðin áberandi stinnari og á bringu verður húðin þéttari.
85% kvenna sem tóku þátt í tveggja vikna rannsókn NIVEA árið 2022 (157 konur) sögðu að NIVEA Cellular 3-Zone Lifting Serum sé „besta öldrunarserumið fyrir sannarlega lyftandi áhrif á húðina.“
Bakuchiol er þekkt í asískri læknisfræði og er unnið 100% náttúrlega úr Babchi plöntunni. Við þróun Cellular Expert Lift línunnar báru vísindamenn NIVEA saman bakuchiol og retínól og segja niðurstöðurnar sýna svipaða virkni beggja efna. Í nokkrum tilfellum gaf bakuchiol betri árangur. „Bakuchiol sýnir betri endurnýjun á húðþekju, eflingu frumuvirkni og vernd gegn sindurefnum. Að auki veldur bakuhiol engri ertingu í húð eða ljósnæmi.“ Útskýrir Dr. Andre Mahns, vísindastjóri NIVEA.