Þáttaröðin er tekin að verulegu leyti á Íslandi og verða tveir fyrstu þættirnir sýndir. Þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 og hafa þessir þættir þegar ratað fyrir augu áskrifenda þar.
Lengi vel stóð til að stjörnur þáttanna, þær Jodie Foster og Kali Reis, kæmu til að vera viðstaddar þessa hátíðarsýningu en á síðustu stundu breyttist það. Hins vegar kemur teymi frá HBO, leikstjórinn, framleiðandinn og fleiri kvikmyndagerðarmenn frá Hollywood sérstaklega af þessu tilefni.
Íslenskt kvikmyndateymi sannað sig í meistaradeildinni
„Þetta er sérstök þakkarsýning,“ segir Leifur B. Dagfinnsson hjá kvikmyndafyrirtækinu Truenorth sem hafði veg og vanda af öllu því sem sneri að tökum á Íslandi.
„Þetta verður húllumhæ. HBO gerir þetta yfirleitt ekki en núna, sem sérstakan þakklætisvott til Íslendinga og ríkisstjórnar Íslands. Til stóð að þessi sýning yrði fyrr í ferlinu, en svo var því seinkað því hugsanlegt var að Jodie kæmist en svo breyttist það aftur.“
Leifur segir mikla ánægju á öllum vígstöðvum með hvernig til tókst. Hann er nýkominn frá Los Angeles þar sem haldin var sérstök frumsýning. Og var þá mikið um dýrðir.
„Mér skilst að stúdíóin séu hætt að vera með sérstakar frumsýningar en þegar vel til tekst gera þau það og er þá öllu til tjaldað. Gaman að sjá þetta. En þau ytra eru rosalega þakklátt með okkar framlag í þessu. Sem er snilld. Íslenska kvikmyndatökuteymið er búið að sanna sig í meistaradeildinni og frábært að segja af því.“
Hamingjuóskum rignir inn
Leifur sat sérstakan fund með forsvarsmönnum fyrirtækis Steve Golin heitins Anonymous Content en hann og Sigurjón Sighvats voru stofnendur Propaganda Films í árdaga.
„Þetta er framleiðslufyrirtæki fyrir handritshöfunda og þeir störtuðu fyrstu seríunni með þeim Woody Harrelsson og Matthew McConaughey. Þeir fá áfram sín kredit sem er merkilegt. Og þeir eru verulega ánægðir og þökkuðu mér fyrir að passa svona vel uppá „brandið“ þeirra. Já, okkur eru að berast kveðjur og hamingjuóskir víðsvegar að. Gaman þegar vel tekst til.“

Spurt er hvort þetta þýði þá ekki áframhaldandi framleiðslu og allsherjar hamingju. Leifur segist í það minnsta vonast til þess. Endurgreiðslan geri sitt og svo uppbygging kvikmyndavera sem hér hefur átt sér stað.
„Þetta opnar klárlega á slík tækifæri. En þetta er allt í endurskoðun. Mér finnst allt vera sex mánuðum á eftir áætlun. Verkfall handritshöfunda ytra og svo leikara settu strik í reikninginn en svo á eftir að koma í ljós á vormánuðum hvað verður. Við erum að klára seríu núna, Darkness sem gerð er eftir bókum Ragnars Jónassonar en það er Lasse Hallström sem leikstýrir. Það heldur okkur við efnið.“