Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, segir að ummæli sín frá því á miðvikudaginn um að ekki væri hægt að semja um aðgerðir á landamærunum vegna þess að Donald Trump vildi nota ástandið á landamærunum í kosningabaráttu sinni, hafi verið mistúlkuð.
McConnell, sem segist vilja ná samkomulagi, sagði í gær að ljóst sé að viðræðurnar séu erfiðar. Bandamenn hans á þingi segja að hann hafi á miðvikudaginn verið að varpa ljósi á það að samkomulag muni mæta mótspyrnu innan flokksins vegna andstöðu Trumps.
Á lokuðum þingflokksfundi á miðvikudaginn sagði McConnell að Trump, sem mun að öllum líkindum hljóta tilnefningu Repúblikanaflokksins, vildi að kosningabaráttan fyrir forsetakosningarnar í nóvember.
„Við viljum ekki gera neitt til að grafa undan honum,“ sagði McConnell.
Sjá einnig: Semja ekki um landamærin til að grafa ekki undan Trump
Umrætt samkomulag felur í sér að leggja fram frumvarp um auknar fjárveitingar til öryggisgæslu á landamærunum og breytingar á lögum varðandi það að loka landamærunum þegar tilefni þykir til og breytingar á meðferð umsókna hælisleitenda. Gera á farand- og flóttafólki erfiðara með að sækja um hæli.
Repúblikanar hafa á undanförnum mánuðum reynt að fá þessar breytingar í gegn með því að nota frumvörp um hernaðaraðstoð handa Úkraínu, Ísrael og Taívan sem vogarafl í viðræðum við Demókrata. Biden getur ekki sent Úkraínumönnum frekari hernaðaraðstoð fyrr en þingið samþykkir frekari fjárútlát en mikil þörf er fyrir frekari aðstoð í Úkraínu, þar sem skotfæri fyrir stórskotalið er af skornum skammti.
Á undanförnum vikum hefur Trump þó þrýst á þingmenn innan flokksins og sagt þeim að gera ekki samkomulag, þar sem það gæti litið út eins og pólitískur sigur fyrir Joe Biden, forseta, og vegna þess að hann vill að kosningarnar snúist um málefni innflytjenda og landamærin.
Mike Johnson, núverandi þingforseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði í nýlegu viðtali á Fox News að Trump væri mjög mótfallinn því að Repúblikanar gerðu samkomulag við Demókrata.
Í yfirlýsingu sem Trump sendi út í gærkvöldi ítrekaði hann það en þar sagði hann að umrætt samkomulag myndi engin áhrif hafa, samkvæmt frétt Washington Post. Trump sagði að eina von Bandaríkjamanna til að laga vandamálin á landamærunum væri að kjósa hann aftur í embætti forseta.

Repúblikanar í öldungadeildinni virðast þó flestir á því að réttast væri að gera samkomulag. Vísa þeir til þess að annað eins tækifæri fyrir Repúblikana til að ná fram helstu baráttumálum þeirra á landamærunum muni aldrei líta dagsins ljós aftur. Jafnvel þó Repúblikanar nái meirihluta á báðum deildum þingsins og forsetinn sé Repúblikani.
Það er vegna þess að margskonar frumvörp, eins og mörg þeirra sem snúa að landamæraöryggi Bandaríkjanna, þurfa sextíu atkvæði í öldungadeildinni en ekki fimmtíu. Til þess að koma frumvarpi í gegn þyrftu Repúblikanar því atkvæði frá einhverjum öldungadeildarþingmönnum Demókrataflokksins.
Kevin Cramer, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, sagði í gær að hann væri ekki á þeim buxunum að það myndi hagnast flokknum að neita að laga vandamál í pólitískum tilgangi. Kjósendur hefðu eðlilega miklar áhyggjur af stöðunni á landamærunum.
Í frétt CNN sem sjá má hér að neðan, lýsta nokkrir aðrir þingmenn flokksins yfir sömu áhyggjum.
GOP Sen. Kevin Cramer on Rs who want to kill bipartisan immigration deal as Trump seeks to derail effort: "I reject the idea we should reserve a crisis for a better time to solve it... I don't see how we have a better story to tell when we miss the one opportunity to fix it." pic.twitter.com/YeJUjpanOR
— Manu Raju (@mkraju) January 25, 2024