Verð voru athuguð með þriggja mánaða millibili, fyrst 26. október 2023 og svo 22. janúar 2024, í ellefu verslunum; Bónus, Extra, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Heimkaupum, Iceland, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Krónunni, Nettó og 10-11.
Verð á vörum frá Myllunni hækkuðu umfram aðrar innlendar brauðvörur í átta af ellefu verslunum. Í 10-11 og Extra breyttust verð á innlendum vörum ekki, en í Iceland hækkuðu vörur frá Myllunni minna en aðrar innlendar brauðvörur.
Að neðan má sjá hækkun á verði á vörum Myllunnar í verslunum.
Í seinni athuguninni þann 22. janúar var Bónus ódýrasta verslunin þegar kom að brauðvörum. Voru verð þar að meðaltali 1,2% frá lægsta verði. Næst kom Krónan (1,8%), en þriðja ódýrasta verslunin var Fjarðarkaup (9%). Dýrust var 10-11, með verð að meðaltali 86% hærri en lægsta verð. Cadbury Fingers kostuðu þar 569 krónur, eða rúmlega þrefalt meira en í Bónus, þar sem þeir voru ódýrastir.
Í verðþróuninni voru vöruverð athuguð verslun fyrir verslun og borin saman ef vörurnar fundust báða dagana sem kannað var. Voru það allt frá 83 vörum í Krambúðinni uppí 354 vörur í Nettó.
Vörurnar sem voru til skoðunar í verðsamanburðinum 22. janúar má sjá hér:
Fyrirsögn fréttarinnar var breytt til að endurspegla að um verðhækkun söluaðila er að ræða en ekki hjá Myllunni sjálfri. Ingvar Örn Ingvarsson, talsmaður Myllunnar, segir sama söluverð á vörum Myllunnar til viðskiptavina nú og í júní í fyrra.