Leikurinn fór fram á Ancient og NOCCO Dusty byrjuðu leika í vörn. Young Prodigies sigruðu fyrstu tvær lotur leiksins áður en Dusty minnkaði muninn í 1-2 og jöfnuðu leikinn í kjölfarið.
Dusty héldu sigrahrinunni áfram en þeir sigruðu næstu þrjár lotur áður en Young Prodigies náðu aftur að sigra, staðan þá 5-3. Young Prodigies sigruðu aðeins eina lotu til viðbótar fram að hálfleik og Dusty fóru með þægilegt forskot er þeir stilltu sér upp í sókn.
Staðan í hálfleik: NOCCO Dusty 8-4 Young Prodigies
Young Prodigies hófu seinni hálfleik eins og þann fyrri og sigruðu fyrstu tvær loturnar og komust þar með í 8-6 áður en Dusty beit til baka, 9-6. Takturinn virtist þá koma hjá Dusty á ný en þeir sundurspiluðu Young Prodigies næstu lotur og komust í úrslitalotu, 12-6.
Young Prodigies sigruðu eina lotu til viðbótar áður en Dusty fann náðarhöggið og sigraði leikinn.
Lokatölur: NOCCO Dusty 13-7 Young Prodigies
Dusty eru nú komnir aftur á topp deildarinnar en þeir eru jafnir Þór á stigum með 26 slík. Þór á þó leik til góða, en sá leikur er gegn Sögu og fer fram á fimmtudaginn næstkomandi. Young Prodigies eru enn með 16 stig í sjötta sæti deildarinnar, jafnir Breiðabliki.