Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Evu B. Helgadóttur, lögmanni konunnar, sem hún sendi fréttastofu. Það komi Evu sjálfri og öðrum sem þekki til málsins á óvart að það hafi verið fellt niður. Málið hafi hvílt þungt á umbjóðanda hennar.
„Ekki aðeins framganga mannsins [Alberts Guðmundssonar] heldur var ekki léttvæg ákvörðun að kæra mann fyrir kynferðisbrot sem hefur tengst fjölskyldu hennar vinaböndum frá því hún var barn. Umbjóðandi minn taldi réttast í stöðunni að vísa ábyrgðinni þangað sem hún á heima og láta málið fara hina lögformlegu leið. Hún hefur ekki sóst eftir neinu öðru en réttlæti og taldi sér siðferðilega skylt að koma málinu í þann farveg,“ segir Eva.
Vinnur úr áfallinu og hugar að framtíðinni
Þá lýsir hún umbjóðanda sínum sem ungri og efnilegri konu sem sé langt komin í krefjandi námi í læknisfræði.
„Og verður fyrir framgöngu sem hún á eftir að eyða ævinni í að vinna úr. Kærði verður að lifa með eigin framgöngu og hvernig hann hefur kosið að taka ábyrgð á henni.“

Þá segir Eva að réttarkerfið hygli sakborningum í kynferðisbrotamálum, sem valdi því að þolendur veigri sér við því að kæra. Hún skoði nú hvort niðurfelling málsins verði kærð til ríkissaksóknara.
„Hvað sem líður niðurstöðu lögfræðinga um líkur á sakfellingu í sakamáli mun umbjóðandi minn einbeita sér að því að vinna úr áfallinu, sinna sínu námi og huga að framtíðinni.“
Albert segist saklaus
Greint var frá því í dag að héraðssaksóknari hefði á fimmtudag fellt niður málið á hendur Alberti þar sem það hafi ekki þótt líklegt til sakfellingar. Konan kærði Albert fyrir kynferðisbrot síðasta sumar. Lögregla hóf rannsókn og sendi málið svo til meðferðar hjá héraðssaksóknara.
Albert hefur ekkert tjáð sig um málið fyrir utan stutta yfirlýsingu í ágúst síðastliðnum, þar sem hann sagðist saklaus af þeim ásökunum sem komið hefðu fram. Frá því málið kom upp hefur Albert ekki spilað með íslenska landsliðinu í knattspyrnu.