40 dagar eru í að boltinn fari að í Bestu deild karla í fótbolta. Þá vaknar spurningin árvissa: Verða grasvellirnir klárir þegar deildin fer af stað?
FH er eitt aðeins þriggja liða í deildinni sem leika á grasi í sumar, auk KR og ÍA. Deildarkeppnin hefur aldrei byrjað eins snemma og í ár og því ljóst að margt þarf að ganga upp til þess að grasið verði í sæmilegu standi þegar mótið hefst.

„Eins og er lítur þetta ágætlega út en auðvitað er viðkvæmasti tíminn eftir, það er að segja, seinni partinn í mars og byrjun apríl. Hvernig veðrið leikur okkur þá skiptir miklu máli fyrir þessa grasvelli,“ segir Viðar Halldórsson, formaður FH.
Ekki aftur á Miðvöllinn
Fyrsti heimaleikur FH á síðustu leiktíð var leikinn á Miðvelli, frjálsíþróttavelli félagsins, og óhætt að segja að aðstæður hafi þar ekki verið til fyrirmyndar.

„Vorið í fyrra var slæmt fyrir grasvelli, það liggur alveg ljóst fyrir. Það var kannski ekki mikið vit í því að vera með varavöll örfáa metra frá aðalvellinum, og báðir grasvellir. Við getum að hluta til kennt okkur um,“
„Svo er spurning um hvaða reglugerðir eru og ég held að menn verði þá bara að vera tilbúnir að færa sig á gervigras ef á þarf að halda.“
Þannig að það verður ekki farið aftur á Miðvöllinn í ár?
„Nei, það vill þannig til að við eigum nú betri völl rétt fyrir ofan Miðvöllinn.“
Hybrid sé framtíðin
Viðar vísar þarna til fyrsta hybridgrasvallar landsins, þar sem gervigrasi og grasi er blandað saman. Hlutfall gervigrass er þó ekki hátt, yfirleitt í kringum 5 til 15 prósent.
Verði aðalvöllur FH-inga ekki klár fyrir fyrsta heimaleik verði líklega reynt að spila á hybridvellinum sem er við hlið íþróttahússins Skessunar.
Þá þurfi þó að koma upp bráðabirgðaaðstöðu, líkt og gert var við Miðvöll í fyrra. Stúkusæti, klósettaðstaða og fleira þarf að vera til staðar svo megi spila á grasinu í efstu deild.
Fréttamaður kíkti með Viðari á grasið og mátti sjá töluvert grænni lit á þeim bletti en öðrum á svæðinu.

„Það er ekkert mikið um það [að sjá svo grænan völl í febrúar] og auðvitað er það vegna þess að hér er undirhiti. Það eru 53 kílómetrar af hitalögn hérna undir. Kannski eini gallinn, hér, núna, er sá að við vorum heldur lengur með verkefnið en við ætluðum,“ segir Viðar.
„Við sáðum sirka tveimur mánuðum seinna en við ætluðum svo þetta er ekki orðið alveg nógu þétt. En að öðru leyti, eins og þið sjáið, þá er alveg hægt að fara í fótbolta hérna núna,“
„Ég held það sé alveg ljóst að þetta sé framtíðin. Auðvitað er alveg ljóst að íslensk félög þurfa einnig að hafa gervigras en ég held að hybridið eigi eftir að koma meira inn á Íslandi, líkt og annarsstaðar í Evrópu.“
Viðtalið auk drónamynda frá FH-svæðinu og af völlunum þremur má sjá í spilaranum að ofan. Fleiri ljósmyndir Arnars Halldórssonar, tökumanns, má sjá að neðan.



