Helstu leikarar The Acolyte eru þau Amandla Stenberg, Lee Jung-jae, Manny Jacinto, Dafne Keen, Charlie Barnett, Jodie Turner-Smith, Rebecca Henderson, Dean-Charles Chapman, Joonas Suotamo og Carrie-Anne Moss.
Þættirnir eru gerðir af Leslye Headland, sem er hvað þekktust fyrir þættina Russian Doll. Hún hefur unnið að The Acolyte frá 2020 en lítið sem ekkert hefur farið fyrir þessum þáttum þar til nú.
Samkvæmt Disney fjalla þættirnir um Jedi meistara sem rannsakar banatilræði gegn Jedi-riddurum í vetrarbrautinni frægu. Við þá rannsókn tekst hann á við stríðsmann úr fortíð sinni.
Fyrstu tveir þættirnir af átta verða frumsýndir á Disney+ þann 4. júní.