Könnun Prósents var netkönnun meðal 1950 manna könnunarhóps og var framkvæmd dagana 20. til 27. mars. Svarhlutfall var 51 prósent sem þýðir að tæplega helmingur þeirra sem fengu könnunina senda svaraði ekki.
Eftirfarandi spurning var lögð fyrir könnunarhópinn: Eftirfarandi er listi yfir þá 48 einstaklinga sem höfðu stofnað meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð á island.is þann 22. mars 2024. Hvern af eftirfarandi frambjóðendum myndir þú vilja að verði næsti forseti Íslands?
Baldur efstur og „veit ekki“ næstur
Í fréttatilkynningu um könnunina segir 34 prósent svarenda segist ekki vita hver þau vilji að verði næsti forseti, Baldur Þórhallsson fái 37 prósent fylgi, Halla Tómasdóttir 15 prósent, Arnar Þór Jónsson 5 prósent, Ásdís Rán Gunnarsdóttir 4 prósent, Ástþór Magnússon Wium 2 prósent, Agnieszka Sokolowska 1 prósent, Sigríður Hrund Pétursdóttir 1 prósent og allir aðrir frambjóðendur samanlagt 3 prósent.

Ríflega helmingur þeirra sem taka afstöðu vill Baldur
Af þeim sem tóku afstöðu vilja 56 prósent að Baldur Þórhallsson verði næsti forseti Íslands. 23 prósent vilja Höllu Tómasdóttur, 8 prósent vilja Arnar Þór Jónsson, 5 prósent Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, 3 prósent Ástþór Magnússon, 1 prósent Agnieszku Sowlolska, 1 prósent Sigríði Hrund Pétursdóttur og 3 prósent samanlagt völdu aðra frambjóðendur.

Karlar vilja frekar Arnar Þór
Í tilkynningu segir að ekki sé mikill munur á milli kynja heilt á litið en marktækur munur sé á viðhorfi karla og kvenna til Arnars Þórs Jónssonar. 7 prósent karla vilji sjá hann sem næsta forseta en 2 prósent kvenna.

Þá segir að Baldur Þórhallsson sæki sitt fylgi helst til 25 til 64 ára en Halla Tómasdóttir sé með mesta fylgið hjá 45 ára og eldri. Flestir eða 55 prósent þeirra sem eru 18 til 24 ára viti ekki hvern þau vilji sem næsta forseta.
