Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, staðfesti í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær að hún íhugaði alvarlega að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands og að hún myndi tilkynna um ákvörðun sína á allra næstu dögum. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir þetta grafa undan trausti almennings á stjórnmálum.
„Af hverju er Katrín að bjóða sig fram til forseta? Finnst henni ekki nóg af vera forsætisráðherra? Ég átta mig ekki á því að sitjandi forsætisráðherra getur ákveðið að það sé góð hugmynd að biðjast lausnar fyrir sína ríkisstjórn. Þetta er auðvitað bara vantraustsyfirlýsing á ríkisstjórnina og mér finnst þetta bara mjög óábyrg og ábyrgðarlaus ákvörðun hjá henni ef hún tekur hana. Og líka bara það að hún sé að íhuga þetta, mér finnst þetta sýna mikið dómgreindarleysi og mikinn skort á að skynja sína stöðu og sína ábyrgð.“
Þegar Þórhildur var beðin um að leggja mat á framhaldið sagðist hún telja að ríkisstjórnin muni halda því stjórnarflokkarnir óttist að fara í kosningar. Hún telur líklegast að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, verði næsti forsætisráðherra ef Katrín fer í framboð.
„Hann hefur nú gert þetta áður, stokkið inn í lifandi lík af ríkisstjórn. Til þess að halda henni gangandi aðeins lengur til þess að það sé hægt að lappa upp á traustið og fenna yfir hneyksli áður en boðað er til kosninga. Ætli það verði ekki eitthvað svipað upp á teningnum núna. Þau geta náttúrulega stjórnskipulega haldið þessu áfram en mér fyndist alveg ótrúlega skrítið að sitjandi forsætisráðherra færi í forsetaframboð og nái kjöri, segjum að hún geri það og sitji svo á ríkisráðsfundum með fyrrum kollegum sínum úr ríkisstjórninni en þetta er bara Ísland í dag og þetta hefur þessi ríkisstjórn gert. Hún hefur gert einhvern skrípaleik úr því að stjórna landinu og þetta er alveg grátlegt.“