Topplið Austurdeildarinnar Boston Celtics vann nauman sigur á liði Sacramento Kings þar sem risaleikur De´Aaron Fox fyrir lið Kings dugði ekki til. Gestirnir fengu þrjú tækifæri á síðustu sjö sekúndunum til að taka forystuna en nýttu ekki sénsinn. Lokatölur 101-100 fyrir Boston Celtics.
Fox skoraði 40 stig fyrir Kings en Kristaps Porzingis skilaði 20 stigum og 11 fráköstum fyrir Celtics sem hefur unnið þrettán af síðustu fimmtán leikjum sínum og er með örugga forystu á toppi Austurdeildarinnar.
FOX BANK 3 FOR THE LEAD.
— NBA (@NBA) April 6, 2024
TILLMAN TAKES IT BACK WITH 07.4 LEFT.
Boston holds on for their 61st win of the season pic.twitter.com/hvRfQ3aqEZ
Dallas Mavericks batt enda á sex leikja sigurgöngu Golden State Warriors með 108-106 sigri. Mavericks voru án stórstjörnunnar Luka Doncic en PJ Washington steig upp í fjarveru Doncic og átti stórleik.
„Hann var stórskostlegur. Þegar maður sá hvernig hann byrjaði vissi maður að þetta yrði sérstakt kvöld. Þetta er það sem við þurfum, sérstaklega þegar okkur vantar menn í hópinn,“ sagði Kyrie Irving leikmaður Mavericks eftir leik.
Washington kláraði leikinn með 32 stig og skoraði sigurkörfuna tæpum fimm sekúndum fyrir leikslok. Step Curry skoraði 28 fyrir Warriors sem eru í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina.
P.J. WASHINGTON LAY FOR THE LEAD
— NBA (@NBA) April 6, 2024
4.5 seconds left... https://t.co/oCFYSOdjKD pic.twitter.com/9y0GepVe4u
15-0 áhlaup Phoenix Suns í upphafi leiks lagði grunninn að sigri liðsins gegn toppliði Vesturdeildarinnar Minnesota Timberwolves. Þetta er aðeins í fjórða sinn í vetur sem Suns náði ekki að skora 100 stig í leik en í fyrsta skipti sem það gerist en liðið nær sigri.
Timberwolves er enn án stjörnuleikmanns síns Karl-Anthony Towns en hann lék síðast með liðinu þann 4. mars. Vonast er til að hann snúi aftur fyrir lok deildakeppninnar um næstu helgi.
Kevin Durant var stigahæstur hjá Suns með 22 stig í 97-87 sigri en Devon Booker var rólegri en í síðustu tveimur leikjum þar sem hann hafði skorað annars vegar 40 stig og hins vegar 52 stig gegn New Orleans Pelicans.
Þá tapaði Milwaukee Bucks á heimavelli gegn Toronto Raptors en lið Bucks á í harðri baráttu um hemeimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Nú munar aðeins tveimur sigurleikjum á Bucks, Cleveland Cavaliers, Orlando Magic og New York Knicks í sætum tvö til fimm í Austurdeildinni.
Úrslitin í NBA í nótt og staðan í deildinni:
Washington Wizards - Portland Trai Blazers 102-108
Indiana Pacers - Oklahoma City Thunder 126-112
Charlotte Hornets - Orlando Magic 124-115
Boston Celtics - Sacramento Kings 101-100
New Orleans Pelicans - San Antonio Spurs 109-111
Milwaukee Bucks - Toronto Raptors 111-117
Memphis Grizzlies - Detroit Pistons 108-90
Houston Rockets - Miami Heat 104-119
Chicago Bulls - New York Knics 108-100
Dallas Maverics - Golden State Warriors 108-106
Phoenix Suns - Minnesota Timberwolves 97-87
Los Angeles Clippers - Utah Jazz 131-102
The East:
— NBA (@NBA) April 6, 2024
- NYK and ORL tied for #4 seed
- CLE 1 GB MIL for #2 seed
- PHI 1 GB MIA for #7 seed
For more, download the NBA App
https://t.co/oRfhdB8ZfO pic.twitter.com/hJ1mlLypjS