Það kom sem þruma úr heiðskíru lofti þegar Víkingur tilkynnti um brottför Nadíu á föstudagskvöldið síðasta. Víkingar hafa lítið sagt um málið út á við en Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála, var stuttorður þegar Vísir hafði samband á föstudag.
„Leikmaðurinn og þjálfari liðsins (John Andrews) áttu samtal sín á milli og leikmaður taldi betra að hún héldi á önnur mið í kjölfar þess samtals,“ sagði Kári á föstudag.
Nadía hefur ekki viljað veita viðtal vegna málsins en hún var kynnt sem nýr leikmaður Íslandsmeistara Vals á sunnudagskvöldið, þegar Valur mætti ÍA í Bestu deild karla.

Líkt og Kári var þjálfarinn Andrews stuttorður þegar Vísir hafði samband við hann vegna málsins í dag.
„Við áttum fund og hún ákvað að hún vildi fara. Af virðingu við hana og hennar framlag til félagsins ákváðum við að setja ekki verðmiða á hana,“
„Það er engin frétt í þessu. Við óskuðum henni alls hins besta og vonum að hún eigi frábært tímabil, nema gegn okkur,“ segir Andrews í samtali við Vísi.
Fyrirliðabandið hafi með málið að gera
Samkvæmt heimildum Vísis stafar ósættið af þeirri ákvörðun að svipta Nadíu fyrirliðabandinu hjá liðinu en það hefur ekki fengist staðfest.
Líkt og segir að ofan hefur enn ekki tekist að fá viðtal við Nadíu vegna málsins.
Nadía getur þreytt frumraun sína fyrir Val þegar liðið mætir einmitt fyrrum félagi hennar Víkingi í Meistarakeppni KSÍ eftir slétta viku, þriðjudaginn 16. apríl.
Keppni í Bestu deildinni hefst sunnudaginn 21. apríl. Valur mætir þá Þór/KA að Hlíðarenda klukkan 15:00. Víkingur hefur keppni degi síðar er liðið sækir Stjörnuna heim í Garðabæ.