Áður en Bambi Thug, sem er kynsegin, steig á svið á þriðjudaginn voru áhorfendur Kan, ríkisrekinnar sjónvarpsstöðvar Ísrael, varaðir við því að flutningurinn gæti hrætt börn. Réttast væri að forða þeim frá sjónvarpsskjánum.
Atriðið innihéldi svartagaldur, vúdúdúkkur og tákn djöfladýrkunar, svo eitthvað sé nefnt.
Þulurinn ísraelski nefndi einnig að Bambie Thug, væri kynsegin og að hán talaði gjarnan illa um Ísrael og að áhorfendur ættu að undirbúa blótsyrði sín, samkvæmt frétt á vef RTÉ, ríkisútvarps Írlands.
Þetta vill Bambi Thug meina að brjóti gegn reglum Eurovision. Í viðtali við RTE segist hán reitt vegna ummælanna og vill að Ísraelum verði vísað úr keppni.
Bambi Thug tók ekki þátt í fánaathöfn fyrir generalprufuna í Malmö í dag. Þátttakendur frá Grikklandi, Sviss og Kýpur tóku einnig ekki þátt í athöfninni.
Þetta er í kjölfar þess að hollenska söngvaranum Joost Klein var vísað úr keppninni í morgun. Kona sem vinnur við Eurovision kvartaði í gær yfir Klein, eftir að hann flutti atriði sitt í undankeppninni á fimmtudagskvöldið.
Kvörtunin, sem sögð er snúast um „hótanir“ er til rannsóknar hjá lögreglu í Svíþjóð.
Forsvarsmenn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) eru sagðir hafa haldið krísufund í dag vegna stöðunnar. Í frétt SVT í Svíþjóð er haft eftir Jean Philip De Tender, einum yfirmanna EBU, að Klein geti ekki tekið þátt í keppninni þar sem hann hafi brotið gegn reglum hennar.
Hann sagði enga „óviðeigandi hegðun“ vera liðna þegar komi að Eurovision og tryggja þurfi öllum starfsmönnum starfsöryggi.