Uppstokkunin er með fyrstu embættisverkum Pútíns á hans fimmta kjörtímabili. Hann stendur nú frammi fyrir sex árum í embætti til viðbótar, hið minnsta, og hafa ítök hans í Rússlandi líklega aldrei verið meiri.
Málið tengist handtöku Timur Ivanov sem hafði verið æðsti undirmaður Shoigus. Ivanov sakaður um að hafa þegið um 11 milljón dollara í mútur (rúmlega 1,5 milljarða króna) en hann bar ábyrgð á helstu framkvæmdum hersins og innkaupum. Mað handtöku Ivanovs var ljóst að Shoigu gæti orðið næstur.
Sergei Shoigu ráðherrann fráfarandi hefur verið undir þrýstingi undanfarið en grannt hefur verið fylgst með ráðuneyti hans. Er það vegna tiltekinna ákvarðana í tengslum við Úkraínustríðið, sem hefur nú staðið í rúm tvö ár.
Með embættistöku Pútins sagði öll ríkisstjórn hans af sér venju samkvæmt og var því búist við því að einhver uppstokkun ætti sér stað. Þessi uppstokkun á embættismönnum innan varnarmála eru þær umfangsmestu frá því að innrásin í Úkraínu hófst í febrúar árið 2022.

Shoigu færist í öryggisráðið sem telst valdameira embætti, að forminu til að minnsta kosti. Valery Gerasimov, formaður herforingjaráðs Rússlands, og Sergei Lavrov utanríkisráðherra halda sínum stöðum.
Skipan Belousov kemur hins vegar á óvart. Að sögn Dimitry Peskov, talsmanni innan Kreml, er breytingunni ætlað að takast á við svipað ástand og um miðjan 9. áratug síðustu aldar, þegar um 7,4 prósent allra útgjalda rússneska ríkisins fóru í öryggismál.
Í slíku árferði væri mikilvægt að fá í embætti varnarmálaráðherra einstakling með hagfræðibakgrunn.
„Sá sem er opinn fyrir nýjungum er sá sem verður sigursælli á vígvellinum,“ sagði Peskov við fjölmiðla í dag.