KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Valur Páll Eiríksson skrifar 14. maí 2024 15:06 Arnar hafði betur í Héraðsdómi Norðurlands eystra og á rétt á tæplega níu milljónum frá KA vegna málsins. Vísir/Hulda Margrét Knattspyrnufélag Akureyrar þarf að greiða Arnari Grétarssyni, fyrrverandi þjálfara meistaraflokks karla, ellefu milljónir króna. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Norðurlands eystra sem kveðinn var upp í dag.
Arnar krafðist greiðslunnar og höfðaði mál vegna árangurs KA í Sambandsdeild Evrópu sumarið 2023 en hann yfirgaf félagið seint á leiktíðinni 2022. Samkvæmt samningi Arnars átti hann rétt á ákveðnu hlutfalli Evróputekna KA á meðan hann stýrði liðinu en undir hans stjórn lenti liðið í Evrópusæti sumarið 2022 og tók því þátt í Sambandsdeildinni árið eftir. Tekjur KA urðu umtalsverðar sumarið 2023 þegar liðið komst alla leið í þriðju umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Sneri ágreiningurinn að því hversu mikið tilkall Arnars væri til fjárins sem félagið vann sér inn eftir að hann hafði hætt störfum hjá félaginu. Dómsorð voru birt á 433.is en samkvæmt þeim er KA skylt að greiða Arnari 8.779.998 krónur auk dráttarvaxta frá 5. nóvember 2023. Þá skal KA greiða tvær milljónir króna í málskostnað. Ekki liggur fyrir hvort KA hyggist áfrýja málinu en ekki náðist í Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, við vinnslu fréttarinnar. Arnar vildi ekki tjá sig um málið við Vísi.
Dómsmál Dómstólar KA Besta deild karla Mest lesið Popp vill fá mömmu Sveindísar oftar Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Djurgården 1-2 | Víkingur þarf að sækja stig í Linz Fótbolti „Núna erum við allt í einu komnir í draumalandið“ Fótbolti Alisson á sömu ósk og svo margir stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Hræðileg mistök Onana en Höjlund kom Man. Utd til bjargar Fótbolti „Það falla mörg tár á sunnudag“ Handbolti Mætti syni sínum Íslenski boltinn Sjáðu fernuna hjá Sveindísi Jane í Meistaradeildinni Fótbolti Segir að Guardiola hafi fórnað titlum vegna eigin hégómagirndar Enski boltinn „Einbeitingaleysið sem leiðir til marka þeirra óboðlegt“ Fótbolti Fleiri fréttir Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Stjarnan kaupir Benedikt frá Vestra Fengu fernu á sig frá Atla í miðju Evrópuævintýri Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Sjá meira