Benjamín, Erik, Felix, Markús, Stefán og Óðinn byrjuðu að ganga á laugardag, en þá fóru þeir 41 kílómeter frá Réttarholtsskóla, yfir Hellisheiði, til Hveragerðis. Á sunnudaginn gengu þeir 29 kílómetra frá Hveragerði til Hagavíkur við Þingvallavatn. Og í dag fóru þeir 41 kílómetra frá Hagavík um Nesjavallaleið aftur í Réttarholtsskóla.
Þegar fréttastofa náði tali af þeim í Kvöldfréttum Stöðvar 2 sögðust þeir ekki vera orðnir neitt sérstaklega þreyttir.
„Augljóslega er okkur smá illt í fótunum, en við erum ekkert rosa þreyttir,“ sagði einn drengjanna.
„Þetta hefur gengið frekar vel, en fyrsta daginn var frekar slæmt veður, rigning og eitthvað, en síðan hefur veðrið verið miklu betra.“
Hvernig hafið þið til dæmis verið að borða?
„Við höfum verið að borða aðallega Snickers og Oatking, en síðan náttúrulega hádegismat. Pabbi hans Stefáns er búinn að vera duglegur að elda fyrir okkur. Við fengum kvöldmat í bústað og í einhverju húsi. Það er búið að ganga mjög vel með mat.“
Þeim segist hafa gengið vel að sofa, en verið þreyttir þegar þeir lögðu af stað. „Annars hefur okkur gengið mjög vel að vera hressir.“
Þið eruð alltaf jafn góðir vinir?
„Já, auðvitað. Því meiri tíma sem við verjum saman því sterkara verður samband okkar.“
Þeir segjast spenntir að klára gönguna og komast aftur heim. „Við erum með heitan pott og pizzu að bíða eftir okkur.“