Göngin voru opnuð við hátíðlega athöfn, þar sem fulltrúar Vegagerðar, Garðabæjar, Betri samgangna og Sjálandsskóla í Garðabæ klipptu á forláta borða. Með tilkomu ganganna þurfa gangandi og hjólandi ekki lengur að fara yfir umferðargötuna sem liggur á Arnarneshæð í Garðabæ, þar sem bílaumferð getur oft verið nokkuð þung.
Fjöldi barna úr Sjálandsskóla var viðstaddur athöfnina, og spennan yfir nýju göngunum leyndi sér ekki, líkt og sjá má í sjónvarpsfréttinni í spilaranum hér að neðan. Þá vakti sirkusatriði ekki síðri kátínu en göngin sjálf.
Bæjarfulltrúi í Garðabæ tók í sama streng og börnin, þó með örlítið meiri áherslu á samgöngubótina sem í göngunum felst, en samkvæmt næsta teljara Borgarvefsjár á Arnarnesvegi gengu tæplega 5.000 manns um stiginn sem liggur að göngunum í þessum mánuði.
„Áður en þessi undirgöng komu þá urðu gangandi og hjólandi vegfarendur að fara yfir Arnarneshálsinn, yfir umferðarþunga götu. Nú er þetta komið í undirgöng og þetta er sérstaklega vel hannað með það að það er ekki mikil upphækkun í þessu. En þetta hefur aðallega með það að gera að við erum koma gangandi og hjólandi frá akandi umferð, og auka öryggi þeirra þannig,“ segir Hrannar Bragi Eyjólfsson bæjarfulltrúi.

Þá gætu göngin fljótt komist á spjöld sögunnar.
„Hver veit nema að nýr forseti Íslands muni nýta sér þessa leið til þess að komast á Bessastaði 1. ágúst, þegar hann festir þar búsetu?“