Þetta kemur fram í tilkynningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Matið hækkar mest í Flóahreppi, eða um 20,6 prósent, og þá nemur hækkunin í Tálknafjarðarhreppi 20 prósentum og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 19,8 prósentum.
Fasteignamatið í Kjósahreppi lækkar hins vegar um 1,5 prósent.
„Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 6,0% á landinu öllu, en hækkunin nemur 5,4% á höfuðborgarsvæðinu og 7,4% á landsbyggðinni. Fasteignamat sumarhúsa hækkar svo um 15,6% á landinu öllu,“ segir í tilkynningunni.
Þegar horft er til tegunda húsnæðis hækka einbýli mest, eða um 4,7 prósent. Fasteignamat á fjölbýlum hækkar um 2,5 prósent milli ára. Af atvinnuhúsnæði hækka geymslur um 7 prósent og iðnaðarhúsnæði um 6,7 prósent.
Fletta má upp nýju fasteignamati fyrir einstaka fasteignir á vefnum leit.fasteignskra.is.