Fyrir leiki kvöldsins voru Mosfellingar og Þróttarar í tveimur neðstu sætum deildarinnar og höfðu ekki unnið leik. En það breyttist í dag.
Þróttur rúllaði yfir nýliða ÍR, 5-0. Kári Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og Sigurður Steinar Björnsson, Ísak Daði Ívarsson og Jorgen Pettersen sitt markið hver.
Þróttur er nú í 10. sæti deildarinnar með fjögur stig, einu stigi minna en ÍR sem er í sætinu fyrir ofan.
Aðeins eitt mark var skorað þegar Afturelding sótti Leikni heim. Það gerði Oliver Bjerrum Jensen þegar sjö mínútur voru til leiksloka.
Mosfellingar, sem voru hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina í fyrra, eru í 8. sæti deildarinnar með fimm stig. Leiknismenn eru á botninum með þrjú stig.
Þá gerðu Grindavík og Keflavik 2-2 jafntefli í Safamýrinni.
Stefán Jón Friðriksson kom Keflvíkingum yfir á 18. mínútu en Kwame Quee jafnaði á þeirri 34. Keflavík komst aftur yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Ingólfur Hávarðarson skoraði sjálfsmark en Dagur Ingi Hammer Gunnarsson tryggði Grindvíkingum stig með marki fjórum mínútum fyrir leikslok.
Keflavík er með fimm stig í 5. sæti deildarinnar en Grindavík er með fjögur stig í 11. sætinu og hefur ekki enn unnið leik.
Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.