Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Kjartan Kjartansson skrifar 3. júní 2024 14:19 Vinkonurnar Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Ruja Ignatova sem er einhver alræmdasta fjársvikakona sögunnar. Sú síðarnefnda bjó meðal annars í íbúð þeirrar síðarnefndu eftir hvarf hennar. Vísir Tilgátu um að Ruja Ignatova, búlgarskur rafmyntarsvikahrappur, hafi verið myrt af búlgörsku mafíunni og líki hennar varpað í Jónahaf er fleygt fram í nýju hlaðvarpi breska ríkisútvarpsins BBC. Ignatova var vinkona forsetaframbjóðandans Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur.
Ignatova hvarf sporlaust í október árið 2017 eftir að hún féfletti milljónir manna með rafmyntinni OneCoin. Óljóst er hvort hún sé lífs eða liðin. Nú segir rannsóknarteymi BBC að einn umsvifamesti mafíósi Búlgaríu, Hristoforos „Taki“ Nikos Amanatidis, hafi verið lífvörður Ignatovu. Taki sé stórtækasti fíkniefnasmyglarinn í sögu Búlgaríu. Bæði bandarísk og evrópsk yfirvöld hafi talið Ignatovu tengda Taki eða í að minnsta voldugum glæpaforingja í Búlgaríu. Skósveinar Taki eru sagðir hafa verið rannsakaðir fyrir vopnað rán, fíkniefnasmygl og morð en hann hafi aldrei verið sóttur til saka sjálfur. Hann er talinn búsettur í Dúbaí þar sem Ignatova átti sjálf lúxusrisíbúð. Líkið bútað niður og hent út í Jónahaf Það sem bendir til þess að Ignatovu hafi verið komið í gröfina er meðal annars lögregluskýrsla sem búlgarskur rannsóknarblaðamaður fékk upp í hendurnar árið 2022. Skjalið hafði fundist á heimili lögreglumanns sem var myrtur. Í skýrslunni lýsir uppljóstrari því að hafa heyrt mág Taki tala um að hann hafi látið myrða Ignatovu síðla árs 2018. Lík hennar hefði verið bútað niður og því kastað af snekkju út í Jónahafið. BBC segir að búlgörsk yfirvöld staðfesti að skýrslan sé ósvikin. Rannsóknarblaðamaðurinn segir að margir samverkamenn Taki telji frásögnina eiga við rök að styðjast. BBC gat hins vegar ekki staðfest frásögnina. Á meðal þeirra sem töldu lýsinguna á því að Ignatova hefði verið myrt sanna var Krasimir „Kuro“ Kamenov, samverkamaður Taki. Kuro var eftirlýstur af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir morð. Hann er sagður hafa sagt búlgarska rannsóknarblaðamanninum að hann hefði heyrt Taki ræða glæpastarfsemi sína fyrir framan Ignatovu. Þegar Kuro spurði Taki hvort það væri viturlegt hefði sá síðarnefndi sagt honum að hafa ekki áhyggjur því hún væri hvort sem er „svo gott sem dauð“. Kuro. eiginkona hans og tveir aðrir voru myrtir af óþekktum mönnum í Höfðaborg í Suður-Afríku í maí í fyrra. Búlgarskur fyrrverandi ráðherra sagði BBC að Taki hefð látið myrða Kuro vegna þess að hann vissi of mikið um hann.
Búlgaría Rafmyntir Erlend sakamál Mest lesið Sjötíu sagt upp og fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Viðskipti erlent Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Viðskipti innlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Einsleitni er ekki málið: „Ætlum við að gera þetta aftur?“ Atvinnulíf Sólveig Ása nýr framkvæmdastjóri Krafts Viðskipti innlent Bakkavör metin á 200 milljarða í yfirtöku Viðskipti innlent Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Samstarf Stjórnin telur RÚV enn vera of skuldsett Viðskipti innlent Jón Haukur ráðinn svæðisstjóri Ceedr Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísland ekki á spjaldi Trumps en fær samt tíu prósenta toll Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Íhuga hærri tolla á alla Facebook hættu að beina auglýsingum að konu eftir að hún lögsótti Meta Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Sjá meira