Gunnar Þór er með sveinspróf í bifvélavirkjun, 43 ára fjölskyldufaðir og hefur starfað hjá Brimborg í rúm 9 ár þar sem hann vinnur aðalega við viðgerðir á peugeot og Citroen bílum.
„Starfið getur verið mjög fjölbreytt allt frá hefðbundnum olíuskiptum og upp í vélauppgerðir. Maður þarf að vera tilbúinn að læra nýja hluti og maður er oft að sjá eitthvað nýtt sem maður þarf að finna útúr.”
Í umsögn sem fylgdi tilfefningu Gunnars var honum lýst sem einum þeim harðasta sem fyrirfinndist á landinu. Ef hann væri ekki að skipta um vélar væri hann að smíða heima hjá sér. Hann hatar víst sumarfrí en elskar að vera ber að ofan í tíu stiga frosti að skrúfa eitthvað saman eða sundur!
Dressaður upp í BLÅKLÄDER
Tommi Steindórs dreif nýkrýndan iðnaðarmann ársins í Sindra þar sem hann var dressaður upp í BLÅKLÄDER frá toppi til táar. Fékk meðal annars „Tomma Steindórs skyrtuna” og tók sig afskaplega vel út.


Glæsilegur verkfærapakki frá DeWalt
Gunnar Þór fékk einnig glæsilegan DeWalt-rafmagnsverkfærapakka frá Sindra, átta rafmagnsverkfæri með öllum nauðsynlegum fylgihlutum.
„Ég er svolítið spenntur fyrir sverðsöginni,” sagði hann enda ýmislegt hægt að gera með henni, saga sig út úr læstum bíl til dæmis! Við óskum Gunnari til hamingju með titilinn.


Hér má sjá myndband frá heimsókn Tomma og Gunnars Þórs í Sindra þar sem hann fékk verðlaunin afhent.