Fram kom í frétt fyrr í dag að alls eigi 48 leigubílstjórar yfir höfði sér kæru vegna grunsemda um brot. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannaði um helgina með leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Niðurstaðan var sú að í nærri helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir.
„Þetta snýr að búnaði sem leigubílstjórum er skylt að vera með í bílunum sínum,“ segir Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð eitt við Hverfisgötu.
„Þetta eru slökkvitæki og sjúkrakassar sem þeim er skylt að vera með,“ segir Unnar og að ökumennirnir sem ekki hafi verið með slík tæki í bílunum hafi verið sendir í skoðun með ökutækin.
Unnar segir að leigubílstjórarnir hafi verið skráðir hjá hinum ýmsu fyrirtækjum en einnig voru í hópnum einkaaðilar.
„Þetta háa hlutfall kom mjög á óvart,“ segir Unnar Már.
Ökumönnum ber að tryggja viðeigandi öryggisbúnað
Hann segir að kærurnar endi ýmist á leigubílstjórunum sjálfum eða á eigendum ökutækjanna sem þeir óku.
„Af því að okkur ber sem ökumönnum, hver sem við erum, ef við fáum lánaðan bíl hjá einhverjum öðrum þurfum við samt að tryggja að hann sé í lagi sem ökumenn, þótt við eigum hann ekki. Þannig það gæti endað þannig,“ segir Unnar Már.
Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni fyrr í dag að hún hafi notið aðstoðar lögreglumanna frá lögregluliðunum á Vesturlandi og Suðurlandi við þetta eftirlit um helgina, auk þess sem fulltrúar frá Skattinum og Samgöngustofu voru með í för.
Halda áfram eftirliti í vikunni
Unnar Már segir að Skatturinn hafi verið að skoða hvernig menn væru að fá greidd laun, staðgreiðslu og ýmislegt á meðan Samgöngustofa hefur eftirlit með lögum um leigubíla og hafi því verið að fylgja því eftir.
„Lögin sem tóku gildi fyrir áramót eru með endurskoðunarákvæði þannig þeir eru að skoða hvað gæti verið að misfarast þannig það sé hægt að laga lögin,“ segir Unnar Már.
Lögreglan heldur eftirliti sínu áfram í vikunni.
„Við ætlum að halda áfram. Í vikunni og svo öðru hvoru óreglulega. Það er ekkert ákveðið hvenær en það verður til að ákveða hvort menn séu búnir að laga hlutina.“
Unnar Már segir að ef leigubílstjórar vilji komast hjá því að fá kæru sé gott fyrir þá að tryggja að allur viðeigandi öryggisbúnaður sé í bílnum.
„Þá er ekkert að óttast. Þeir eiga alveg að kunna þetta allir. Menn þurfa að passa betur upp á sína hluti.“