Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, segir í samtali við Vísi að til hafi staðið að setja hjólabrautina upp um leið og búið var að flytja hana á svæðið. Þegar þangað var komið sáu þau þó að undirlagið á svæðinu hentaði ekki fyrir hjólabrautina.
Tilbúið í næstu viku
„Það átti að flytja hana og setja hana strax upp. Við héldum að þetta væri einfaldara en svo kom í ljós að það þurfti að fara í smá vinnu við að undirbúa undirlagið. Meira en við áttum von á.“
Búið er að ráða verktaka til að taka við verkefninu og hefst vinnan sem fylgir því í dag. Hjólabrautin verður tilbúin til notkunar í næstu viku og jafnvel fyrr. Hjólabrautin mun aðeins standa tímabundið á Klambratúni en hún verður færð aftur á Miðbakka þegar að parísarhjólið verður tekið niður.
„Það er einhver peningur sem fer í bæði flutninginn og uppsetninguna, það liggur ekki fyrir nákvæmlega hve mikið en þetta er ekkert verulegt,“ segir hún og bætir við að framkvæmdirnar séu lítilsháttar.
Slysahætta vegna brautarinnar
Athygli var vakin á málinu með færslu í Facebook-hóp fyrir íbúa í Hlíðunum en þar var gagnrýnt að hjólabrautin væri skilin eftir í umræddu ástandi. Í færslunni er ýjað að því að ekki hafi verið gert ráð fyrir fjármagni fyrir brautina og bent á að af henni stafi talsverð slysahætta.
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, var fljótur að svara færslunni og þakkaði fyrir ábendinguna. Hann sagðist ætla kanna hvers vegna samsetningu hjólabrautarinnar væri ekki lokið og ítrekaði að parísarhjólið væri tekjulind fyrir borgina en Reykjavíkurborg stendur ekki undir neinum kostnaði vegna þessa.
Eva segir að ráðning verktakans hafi ekki verið til að bregðast við færslunni enda hafi alltaf legið fyrir að reisa hjólabrautina með viðunandi hætti á svæðinu. Hún telur að tekjurnar frá parísarhjólinu komi til móts við kostnað við að setja saman hjólabrautina.