„Að reka kosningabaráttu er mikil vinna en eitt af því fallegasta við ferðalagið var að sjá sjálfboðaliða á öllum aldri spretta fram í hundraða tali. Allt í einu verður til hópur fólks sem deilir sýn á framtíð Íslands og vinnur saman að henni,“ segir Halla Hrund í samtali við Vísi. Halla Hrund fór með himinskautum í skoðanakönnunm í aðdraganda forsetakosninga og lenti að lokum í þriðja sæti með rúm sextán prósent atkvæða.
Halla segist hafa byrjað þann 17. júní að senda fyrstu þakklætisvotta til sjálfboðaliða sinna. Þakklætisvotturinn sé íslenskt birkifræ í takt við áherslu framboðsins á að láta tækifærin vaxa og dafna um allt land. Líklega séu því eitthvað um eða yfir milljón birkifræ í umslögunum.

Frábært fjölskylduverkefni
„Birkifræin eru frá Skógræktinni og við endurpökkuðum þeim í litla poka sem rúmast í umslagi sem berast nú með póstinum eins og heitar lummur. Ætli ég sé ekki búin með rúmlega fjögurhundruð þakkarkort, og á svona sexhundruð eftir. Sumarfríið nýtist því einstaklega vel, svo ég tali nú ekki um rigningardagana!“ segir Halla Hrund.
„Þetta er reyndar frábært fjölskylduverkefni, eldri dóttir mín er dugleg að skrifa utan á kortin og við njótum þess að hugsa með þakklæti til alls þessa góða og atorkusama fólks sem lagði okkur lið. Það var ómetanlegt. Við erum ekki með heimilisföng hjá öllum og fólk getur því sent mér sitt til að tryggja sér fræ á meðan birgðir endast. Vonandi verða til litlir birkilundar um allt land, sem minna á að með samvinnu og örlítið af bjartsýni og gleði er hægt að koma ótrúlegum hlutum í verk.“