Stjarnan, sem leikur í Bestu deildinni, hefur spilað undir stjórn Kristjáns síðan í október árið 2018 en Kristján er afar reynslumikill þjálfari sem hefur komið víða við á sínum ferli.
„Undir hans stjórn hefur liðið tekið miklum framförum, bætt árangur sinn á milli ára og tekið þátt í Evrópukeppni félagsliða,“ segir í yfirlýsingu Stjörnunnar en Kristján skilur við liðið í 8.sæti Bestu deildarinnar þar sem að liðið er með níu stig eftir tíu umferðir.
Stjarnan leitaði ekki langt út fyrir Samsungvöllinn að arftaka Kristjáns í starfi því félagið hefur gengið frá ráðningu Jóhannesi Karli Sigursteinssyni í þjálfara stöðuna. Jóhannes hefur unnið með þjálfarateymi Stjörnunnar við leikgreiningar síðustu tvö ár.