Ný Evrópureglugerð um erfðaupplýsingar geri ráð fyrir ætluðu samþykki Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. júlí 2024 12:55 Hrefna segir meðal annars mikilvægt að tryggja að mönnum verði ekki mismunað á grundvelli erfðamengis. Ný Evrópureglugerð um sameiginlegt heilbrigðisgagnasvæði mun hafa það í för með sér að gert verður ráð fyrir ætluðu samþykki þátttakenda í rannsóknum um að fá mikilvægar upplýsingar um eigið heilsufar.
Um er að ræða gjörbreytingu frá því sem nú er, segir Hrefna Dögg Gunnarsdóttir lektor við lagadeild Háskóla Íslands í viðtali við Læknablaðið. „Til þessa hefur þurft að afla samþykkis rannsóknarþátttakenda til að veita þeim heilsufarsupplýsingar,“ segir Hrefna en breytingin sé á pari við það þegar ætlað samþykki var tekið upp í tengslum við líffæragjöf. Reglugerðin er enn í vinnslu hjá Evrópusambandinu en Hrefna segir að mörgu að huga fyrir þau ríki sem hún mun koma til með að hafa áhrif á. Nánari útfærsla á því hvernig upplýsingarnar eru veittar verði á forræði einstakra ríkja. Framundan sé vinna við að ákveða hvernig haga ber málum til framtíðar og hvernig meðhöndla eigi rannsóknarniðurstöður sem þegar liggi fyrir. Hrefna segir að huga þurfi að hagsmunum einstakra hópa, eins og barna. „Á að leyfa erfðamengisrannsóknir á lífsýnum og/eða gögnum heilbrigðra barna eða takmarka rannsóknir við börn þar sem líkur eru á erfðabreytileika? Á að veita upplýsingar um erfðabreytileika sem ekki munu raungerast fyrr en á fullorðinsárum og takmarka þá mögulega rétt barna til opinnar, frjálsrar framtíðar eða á að einblína á upplýsingar þar sem meðferð eða fyrirbyggjandi meðferð þarf að hefjast strax í æsku? Þetta eru spurningar sem þarf bæði að velta upp og svara mjög skýrt,“ segir Hrefna. Þá sé mikilvægt að kerfið sé undir það búið að grípa þá einstaklinga sem þarfnast meðferðar eða eftirfylgni. „Það er ábyrgðarleysi að ætla að veita upplýsingarnar án þess að tryggja hvað tekur við. Heilbrigðiskerfið þarf að vera í stakk búið til þess að taka við því fólki sem mun fá upplýsingar um lífsógnandi og meðferðartæka sjúkdóma,“ segir Hrefna í samtali við Vísi í apríl síðastliðnum. Snýst ekki bara um einstaklinga, heldur heilu fjölskyldurnar Greint var frá því í júní síðastliðnum að Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefði skipað starfshóp um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu en formaður hópsins er Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Markmiðið með vinnu hópsins verður að móta stefnu í því hvernig erfðaupplýsingar verða nýttar til að efla heilbrigðisþjónustuna en Kári hefur lengi talað fyrir því að einstaklingar séu upplýstir um þá áhættuþætti sem kunna að felast í erfðamengi þeirra. „Það er hefð fyrir því í íslensku samfélagi að við reynum að bjarga því fólki sem er í lífshættu. Þegar fólk býr í húsum sem steðjar hætta að af snjóflóðum þá biðjum við fólkið að flytja. Ef það vill ekki flytja í burtu þá flytjum við það nauðungarflutningum,“ sagði Kári í samtali við Stöð 2 í apríl. Til umræðu var meðal annars gagnasafn ÍE, þar sem finna má upplýsingar um einstaklinga með hættulega erfðabreytileika, sem einstaklingarnir sjálfir hafa ekki hugmynd um. Kári sagði óásættanlegt að fólk væri ekki upplýst. „Við værum ekki bara að bjarga einstaklingum, við værum að bjarga fjölskyldum. Þessi 15 þúsund manns sem bera þessar stökkbreytingar eru líklega í kjarnafjölskyldum sem telja allt í allt 60 þúsund manns. Síðan er þetta skylda okkar gagnvart samfélaginu, því við getum að öllum líkindum minnkað byrði heilbrigðiskerfisins töluvert með því að stunda fyrirbyggjandi aðgerðir í stað þess að bíða þess að þetta fólk lendi inni á sjúkrastofnunum og séu þar byrði um lengri tíma þar til það deyr,“ sagði Kári.
Heilbrigðismál Íslensk erfðagreining Evrópusambandið Mest lesið Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Innlent Fleiri fréttir Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð „Bara einfalt að leyfa fólki að leita að olíu“ Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Gosvá á höfuðborgarsvæðinu, dauðastríð og áhorfendabann Katrín vill leiða framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar Hagræðingarhópurinn kostaði rúmar sjö milljónir Viðurkenndi brot gegn barnungri systur en sýknaður Reyndu að sprengja upp hraðbanka sem stendur allt af sér Landris hraðara en eftir síðustu eldgos Gefur kost á sér þrátt fyrir „krankleika“ í vetur og á ekki von á „heiftúðlegum átökum“ „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Sjá meira