Eins og fram hefur komið var Halla Tómasdóttir verðandi forseti og hennar spúsi að kaupa sér Volvo EX 30 í ultra útfærslu með stærri gerð rafhlöðu. Og þau fengu afslátt sem hefur verið upplýst um.
Hjá fyrirtæki Ástþórs Magnússonar Islandus Bílum www.islandus.is fá allir landsmenn forsetakjör á bílum, eins bílum og þeim sem Halla var að kaupa.
„Islandus Bílar hafa í nær tvo áratugi veitt forsetakjör á bílum til framáfólks í stjórnmálum, viðskiptum og nákvæmlega sömu kjör til alls almennings. Þar er bara alltaf lægsta verð fyrir alla,“ segir Ástþór.
Halla hefur hlaupið eitthvað á sig
Ástþór segist ætla að bjóða öllum eins bíl og þann sem Halla var að kaupa með sem samsvarar tveggja milljóna króna afslætti miðað við þau kjör sem Brimborg bauð Höllu bílinn á. Hann auglýsir Volvo EX30 á verði allt frá 5,8 millljónum króna. Halla greiddi 7,3 milljónir fyrir Volvo EX30 í ultra útfærslu með betri rafhlöðu.
„Það er það sem sparast á því að kaupa bílinn hjá okkur. Islandus er alltaf ódýrast; ráðherrar, listamenn og allskonar mektarfólk hafa ekið um á bílum frá okkur Og almenningur. Alltaf sömu kjörin. Það er ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt alla daga.“

Spurður um hvað honum finnist um loðin svör Höllu um bílaviðskiptin við Brimborg og Egil Jóhannsson forstjóra þar segist Ástþór ekkert ætla að kommenta á það.
„Þetta er eitthvað athuganaleysi, hún hefur hlaupið á sig, fólk í svona leiðtogastöðum getur ekki verið að þiggja einhver sérkjör. Ég er ekkert að ætla henni það. Ég myndi aldrei leita eftir sérkjörum sem kjörinn leiðtogi,“ segir Ástþór.
Hann segist hafa verið með friðarmálin á oddinum í sínu framboði og nú sé að duga eða drepast. Hreinlega.
„Nú er mómentið fyrir Íslendinga að fara að gera eitthvað i þessu. Forsetinn þarf að byrja að vinna að því og ég mun auðvitað fylgjast grannt með hvað hún gerir. Hún er ekki að fara í frí, sko. Hún er að fara að vinna ef það er eitthvað vit í henni.“
Það verður engin Reykjavík, engir Bessastaðir
Ástþór vonast til þess að friðarmálin séu komin á oddinn með Höllu en nú þurfi bara að bíða og sjá. Og allt muni þetta koma fram í bók sem væntanleg er um áramótin þar sem Ástþór fer yfir málin og ræðir meðal annars um mótframbjóðendur sína í forsetakosningunum sem eru til þess að gera nýafstaðnar.
„Þú ert með brjálað fólk í stjórnarráðinu sem er að setja framtíð þjóðarinnar í stórhættu. Það er við að brjótast út heimstyrjöld. Þetta eru landráð að hafa gert þessa samninga niðrí Úkraínu. Þar er verið að setja Ísland í stórhættu.“
Ástþór svarar spurningunni við því, að því gefnu að Halla hafi ekki kjarkinn, hvort hann muni þá bjóða sig fram aftur að fjórum árum liðnum, með eftirfarandi hætti:
„Gefum okkur að hún hafi hann ekki. Þá myndi ég fara að leita mér að húsnæði erlendis. Ég er ekki viss um að það verði nein Reykjavík eða Bessastaðir ef ekki verður gripið í taumana. Allaveganna ekki á þeim stað þar sem þær voru síðast. Þetta er alvarlegt mál sem er að gerast og ég var ekki að grínast með það þegar ég sagði að það þyrfti að handtaka Bjarna Ben þegar hann kom til landsins og lesa fyrir hann hvað landráð eru.“