Norris átti besta tímann í þriðja og síðasta hluta tímatökunnar í dag þegar hann kom í mark á tímanum 1:09,673, en hann var 0,356 sekúndum hraðari en heimsmeistarinn Max Verstappen sem mun því ræsa annar.
Frá því að hollenski kappaksturinn snéri aftur í Formúlu 1 árið 2021 hefur Verstappen alltaf ræst fremstur á sinni heimabraut, þar til nú. Norris er því sá fyrsti til að hafa betur gegn Hollendingnum í tímatökunum á Zandvoort.
Lando Norris hails "amazing" run to Zandvoort pole but expects home hero Max Verstappen to "put up a good fight" on race day#F1 #DutchGP https://t.co/GoPEVY16YA
— Formula 1 (@F1) August 24, 2024
Oscar Piastri, liðsfélagi Norris hjá McLaren, kom í mark á þriðja besta tímanum og George Russell á Mercedes mun ræsa fjórði.
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton lenti hins vegar í brasi og féll úr leik í öðrum hluta tímatökunnar. Hann mun því ræsa tólfti í hollenska kappakstrinum á morgun.
Norris and Verstappen on the front row, Sainz and Hamilton on the charge 🍿
— Formula 1 (@F1) August 24, 2024
Here's the starting line-up for the 2024 Dutch Grand Prix 👀 #F1 #DutchGP pic.twitter.com/kV3GG7eJ4M