Yazan er með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne og stendur enn frammi fyrir brottvísun, en er sem stendur í hvíldarinnlögn á spítala. Fjölmennur samstöðufundur var haldinn fyrir á Austurvelli í gær.
Sólveig Arnarsdóttir skipuleggjandi mótmælanna og fundarstjóri segir útlitið fyrir Yazan alls ekki nógu gott.
„Það á bara að halda áfram að undirbúa brottvísun drengsins,“ segir Sólveig sem ræddi málið í beinni útsendingu á Austurvelli.
Siðurinn í landinu í húfi
„Við skynjum öll, í hjarta okkar innra með okkur, að þetta er rangt. Það getur ekki verið að við ætlum sem samfélag að bregðast þessu barni. Að bregðast ellefu ára gömlum dreng frá Palestínu, sem er bundinn hjólastól, og er að leita hér hælis. Okkur ber einfaldlega skylda til að hjálpa barni í neyð.“
Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur segir almenning á Íslandi senda stjórnmálafólki þau skilaboð að „hér sé siðurinn í landinu í húfi.“
„Við höfum verið samtaka um það, þrátt fyrir allan mannamun og þrætuhneigð, að hér verndum við börn. Við fundum það svo sterkt á þessum fundi hér í dag, þar sem breiður hópur fólks var saman komið vegna þess að okkur verkjar í þjóðarsálina. Við skynjum að siðurinn í landinu er í húfi. Við getum ekki horft á það að dreng í þessum aðstæðum, langveiku barni, verði úthýst úr samfélaginu með þessum hætti úr samfélaginu okkar. Við getum ekki gert það.“
Sólveig segir fólkið í landinu muni bregðast við brottvísuninni.
„Við munum ekki sitja þögul hjá og fylgjast með því. Barnið er á spítala. Við munum ekki sitja hjá og fylgjast með því hvernig honum verður bara hent úr landi. Það er bara óhæfa, það getur ekki verið.“
„Mig langar líka að segja, þar sem íslensk stjórnvöld segjast ekki vilja setja fordæmi, að íslensk stjórnvöld eru einmitt að setja fordæmi með því að vísa barni úr landi. Þá er verið að setja það fordæmi að það sé bara í lagi að hjálpa ekki barni í neyð. Það finnst mér ekki fallegt fordæmi og ekki eitthvað sem við ættum að hafa fyrir börnunum okkar,“ sagði Sólveig Arnarssdóttir.